Desember
Sólsetur séð yfir Hornafjörð

30.12.2004 Desember

Mikil hálka hefur verið á flestum vegum

Síðustu daga hefur verið mikil hálka á flestum vegum innan Sveitarfélagsins og í dag var fljúgandi hálka í sunnanverðu Lóni og hvassviðri. Ekki hafa orðið nein umferðarslys um hátíðina þó akstursskilyrði hafi ekki verið sem best utan smá óhapps í dag er ökumaður réði ekki við bíl sinn í hálkunni. Lögreglan segist hafa átt róleg og góð jól og bæjarbúar hafi verið hreint til fyrirmyndar. Veðurspá er leiðinleg fyrir síðasta dag ársins en ekki skal örvænta strax um gott veður fyrir flugelda og brennu því komið hefur fyrir að veðurspár rætast ekki og veður verða betri en spáð er.

Samkvæmt spá veðurstofunnar þá eru Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Vestan og suðvestan 8-13 m/s og él, en léttskýjað austan Öræfa í dag. Suðaustan 8-13 og slydda eða rigning á morgun. Snýst í suðvestan 13-18 með éljum síðdegis. Hiti í kringum frostmark.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica