Desember
Afgreiðsla flugeldasölunnar
Afgreiðsla flugeldasölunnar
Mynd 1 af 2
1 2

29.12.2004 Desember

Yfirleitt rólegt fyrsta daginn í flugeldasölunni

Björgunarsveitin byrjaði flugeldasölu sína í gær í Slysavarnahúsinu Höfn. Ludvig H. Gunnarsson (Lúlli) hefur sem fyrr umsjón með sölunni. Hann sagði að yfirleitt væri rólegt fyrsta daginn þá væru það helst krakkarnir sem kæmu að kaupa ,,smádótið". Lúlli segir að terturnar séu langvinsælastar en svo séu sumir sem vilji bara flugelda, rakettur og smádót fyrir börnin. En hvað skyldi svo ljósadýrðin á gamlaárskvöld kosta" Lúlli var fús til að upplýsa okkur um það: Kappaterturnar kosta frá 2.400 kr. uppí 6.900. ,,Bardagar" eru á 12.900 og 15.900 kr. og það er alflottasta tertan, heill kassi með einum kveik. Lúlli segist líka eiga tvö stykki af einhverjum svakalega flottum flugeldum sem hann segist ekki muna nafnið á og þeir 24.900 kr. Venjulegir fjölskyldupakkar koma í þrem stærðum og er verð þeirra 3.100, 4.500 og 5.300 kr.

Að venju verður Björgunarsveitin með flugeldasýningu á gamlaárskvöld og einnig sjá björgunarsveitarmenn um brennuna. Lúlli segir það vera stórmál í dag að fá þau leyfi sem til þarf til að vera með brennu og flugeldasýningu og kosti þau 14 þúsund krónur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica