Vel heppnaðir jólatónleikar í Hafnarkirkju
Eins og hefð er orðin, hélt Karlakórinn Jökull sína árlegu jólatónleika í Hafnarkirkju síðastliðið sunnudagskvöld. Hafnarbúar og nærsveitamenn ásamt gestum fjölmenntu á tónleikana og þegar allt var talið með og ásamt flytjendum þá voru um 430 manns í Kirkjunni. Þó var haft á orði að vantaði í hópinn þar sem barnakórarnir voru ekki með í þetta sinn. Karlakórinn hefur staðið fyrir þessu tónleikahaldi sem er orðinn órjúfanlegur partur af hefðinni hjá mörgum sýslubúum í fjöldamörg ár og hefur notið dyggrar aðstoðar bæði kóra og annars tónlistarfólks á staðnum.
Þeir sem fram komu á tónleikunum voru til að mynda kór heldri borgara Gleðigjafar, Kvennakór Hornafjarðar sem á tónleikunum frumflutti meðal annars jólalag eftir Sigjón Bjarnason frá Brekkubæ við undurfagran texta Guðbjartar Össurarsonar, Samkór Hornafjarðar og unga fólkið þau Elvar Bragi Kristjónsson sem spilaði á trompet við undirleik Guðlaugar Hestnes og Hulda Rós Sigurðardóttir sem söng við undirleik Heiðars Sigurðssonar létu sitt ekki eftir liggja. Kynnir á tónleikunum var Magnús J. Magnússon og allt þetta fólk gaf sína vinnu í þágu góðs málefnis.
Aðgangseyrinn hefur jafnan verið gefinn til góðra málefna og til styrktar ýmsum einstaklingum. Að þessu sinni var allur ágóði af tónleikunum afhentur Margréti Andrésdóttur en hún ásamt dóttur hennar hafa átt við erfið veikindi að stríða undanfarið. Það var formaður Karlakórsins Heimir Heiðarsson sem afhenti Margréti gjafabréf að veðmæti rúmlega 330.000.- í lok tónleika og að því loknu sameinuðust svo allir flytjendur og gestir og sungu Heims um ból.





Skrifa athugasemd