Jólapakkaballið og jólablað Þrykkjunnar
Hið árlega Jólapakkaball Þrykkjunnar haldið í Pakkhúsinu sl. fimmtudagskvöld. Þetta hefur verið einn af föstum punktum í starfi félagsmiðstöðvarinnar undanfarin ár og lukkast vel. Krakkarnir komu í jólaskapi hvert og eitt með jólapakka sem þau settu í stórann poka og síðan gáfu jólasveinar hverjum og einum gesti pakka úr pokanum. Þá hafa fyrirtæki gefið jólapakka sem eru dregnir út úr númerum á aðgöngumiðunum og vöktu þeir mikla lukku.
Hljómsveitin MÍR tók nokkra létta rokkara á ballinu og síðan tóku ýmsir frægir tónlistarmenn lagið í gegnum tövuna og kerfið. Pakkhúsið var vel skreytt jólaljósum og öðru sem tilheyrir jólunum. Jólapakkaballið var haldið í Pakkhúsinun vegna þess að verið er að taka Sindrabæ í gegn en þar er Þrykkjan með starfsemi sína. Það er reiknað með því að strax á nýju ári verði flutt þar inn aftur í endurbætta aðstöðu.
Þá kom jólablað Þrykkjufrétta út í gær og var það fjölbreytt að efni, m.a. er greint frá söngvarakeppni Þrykkjunnar og hver stóð þar uppi sem sigurvegari og 1.des. fagnaði í Suðursveit, viðtöl og myndir eru á sínum stað, getraun omfl. Það er því jólaskapið og gleði sem verður í fyrirrúmi hjá krökkunum á næstunni. Þetta var síðasti viðburður Þrykkjunnar á þessu ári. Gleðileg jól!




Skrifa athugasemd