Kvikmyndasýningar hefjast að nýju í byrjun febrúar
Verið er að gera gagngerar endurbætur á kvikmyndasalnum í Sindrabæ en fyrirhugað er að Tónskólinn verði þar með kennslustofu og nota salinn undir smærri tónleika. Einnig mun félagsmiðstöðin Þrykkjan hafa þar aðstöðu fyrir kvikmyndaklúbbinn sinn. Sökum þessara breytinga er verið að skipta út stólum, allt málað, nýr dúkur settur á gólf og hljóðkerfið verður endurbætt. Gömlu stólarnir hverfa og nýir koma í staðinn en þeir eru innfluttir og eru sérstaklega gerðir fyrir sal sem þennan. Reiknað er með að salurinn opni í byrjun febrúar á næsta ári.
Sökum þess að verið er að vinna í salnum og beðið eftir nýju stólum þá falla niður kvikmyndasýningar yfir jólin eða þar til verkinu verður lokið.





Skrifa athugasemd