Desember
Hrútur á flótta
Hrútur á flótta
Ómar Fransson náði að góma hrútinn og með góðri aðstoð
Mynd 1 af 2
1 2

14.12.2004 Desember

Hrútur á flótta undan lögreglunni á Höfn

Lögreglan á Höfn, ásamt nokkrum bæjarbúum, lenti í óvenjulegum eltingarleik í gærkvöldi. Hrútur, sem talið er að hafi komið utan af Ægisíðu, sást á rölti inni í bænum, líklega að virða fyrir sér alla jólaljósadýrðina. Lögreglan fór á stað og hugðist handsama hrútinn ásamt nokkrum vöskum mönnum. Ekki gekk sú handtaka greiðlega því hrúturinn reyndist frár á fæti og barst eltingarleikurinn víða um bæinn m.a. um íþrótta-og sparkvöllinn. En hrúturinn átti við ofurefli að etja og við Olís endaði þessi ójafni eltingarleikur þegar Ómar Fransson náði að góma hrútinn og með góðri aðstoð var honum komið í hendur lögreglunnar. Ekki vissi lögreglan í gærkvöldi hver væri eigandi hrútsins, en málið væri í rannsókn og beðið var komu mark-glöggs manns.

Þegar upplýst verður hver eigandi hrútsins er verður honum skilað til síns heima og málinu þar með lokið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica