Látum ekki rafmagnið setja brennimark sitt á heimilið um jólin
Frá rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu
Rafmagn er einn stórvirkasti brennuvargur nútímans. Á hverju ári verða margir eldsvoðar sem eiga upptök sín í rafbúnaði. Stundum kviknar í vegna bilunar en oftast er um að ræða að gáleysi í umgengni við rafmagn valdi slysum eða íkveikju. Jólin eru hátíð ljóssins og er þá kveikt á fleiri ljósum og þau oft látin loga lengur en aðra daga ársins. Hluti af undirbúningi jólanna á að vera að ganga úr skugga um að þau ljós sem nota á séu í góðu lagi. Óvandaður, skemmdur og rangt notaður ljósabúnaður getur valdið bruna og slysum.
9 Jólaljósapunktar 2004
1 Jólaljósin passa sig ekki sjálf.
Best er að fara ekki frá logandi jólaljósum þegar farið er að sofa eða þegar heimilið er mannlaust. Ef bilun verður í seríunni getur hún hitnað þannig að hætta stafar af.
2 Skiptum um perur
Ef pera bilar í jólaseríu, eykst oftast styrkurinn á hinum perunum í seríunni og þær hitna. Aukinn hiti frá perunum getur valdið bruna. Þess vegna er rétt að skipta biluðum perum út strax og passa að nota perur af réttri gerð, stærð og styrkleika.
3 Perur hitna
Flestar perur gefa frá sér hita. Því er varasamt að hafa pappír, greni og annað skraut nálægt logandi perum. Þá er ekki rétt að hafa jólaseríur nálægt gluggatjöldum.
4 Kerti og rafmagnstæki eiga ekki samleið
Ekki er rétt að hafa kerti og kertaskreytingar á sjónvarpinu eða hljómflutningstækjum. Dæmi er um að kerti bræði sér leið niður í tækin og kveiki í þeim.
5 Gömlu jólaljósin geta verið varasöm
Margir eiga gömul og falleg jólaljós sem eru í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Sum ljós eru jafnvel áratuga gömul og eru í notkun hjá annari eða þriðju kynslóð. Rétt er að láta líta á þessi ljós því oft vilja leiðslunar trosna og klærnar brotna. Oft má gera þessi ljós sem ný, en þau geta verið varasöm ef þau fá ekki nauðsynlegt viðhald.
6 Vöndum valið
Ekki er til neitt eitt ráð til að ganga úr skugga um hvort jólaljós séu af vandaðri gerð. Vert er þó að hafa í huga að sérlega ódýr jólaljós eru yfirleitt ekki eins vönduð og dýrari ljós af svipaðri gerð. Gæði og öryggi fara saman í þessu sem öðru.
7 Notum aldrei inniljós úti.
Jólaljós utandyra eiga að vera sérstaklega gerð til slíkrar notkunar. Á öllum jólaljósum eða umbúðum þeirra, sem seld eru hér á landi sem inniljós, á að standa á íslensku að þau séu eingöngu til notkunar innanhúss. Að nota inniljós utandyra getur verið lífshættulegt. Útiljósakeðjur sem ekki eru tengdar við spennubreyti (12V-24V) eiga að vera vatnsvarðar. Brýnt er að perur útiljósa vísi ávallt niður svo að ekki sé hætta á að vatn safnist í perustæðin.
8 Slönguljós
Mikil aukning hefur orðið á undanförnum árum í notkun svokallaðra slönguljósa sem hægt er að kaupa í metravís. Því miður er nokkuð um íkveikjur af völdum slíkra ljósa og nær undantekningarlaust er það vegna þess að ekki er vandað nægilega til samsetninga. Það er því afar brýnt að fá nákvæmar leiðbeiningar frá söluaðilum um samsetningu slíkra ljósakeðja og fara eftir þeim í einu og öllu.
9 Reykskynjarinn sefur aldrei
Reykskynjarar eiga að vera á hverju heimili. Gott er að hafa það sem fastan lið í jólaundirbúningnum að skipta um rafhlöðu í reykskynjaranum.





Skrifa athugasemd