Desember
Vígsla Sparkvallar KSÍ
Vígsla Sparkvallar KSÍ
Á mánudaginn var sparkvöllur KSÍ og sveitarfélagsins formlega vígður (úr myndasafni KSÍ)

10.12.2004 Desember

Vígsla Sparkvallar KSÍ

Á mánudaginn var sparkvöllur KSÍ og sveitarfélagsins formlega vígður. Við það tækifæri komu góðir gestir í heimsókn frá Knattspyrnusambandi Íslands. Athöfnina hófst með ávarpi Geirs Þorsteinssonar framkvstj. KSÍ Að því loknu afhenti hann Heppuskóla fótbolta og eins fékk knd. Sindra gjafabréf upp á 20 bolta frá styrktaraðilum sem Jóhanna Stígsdóttir veitti viðtöku. Þá flutti Albert Eymundsson bæjarstjóri ávarp og þakkaði öllum þeim sem komu að framkvæmd vallarins fyrir frábært framtak. Útgerðarfyrirtækið Skinney - Þinganes gaf öllum nemendum í 5., 6., og 7. bekk í Hafnarskóla fótbolta og var mikið fjör þegar nemendurnir sóttu hver og einn sinn bolta en búið var að merkja þá með nafni hvers nemanda. Veglegur blómvöndur barst til umf. Sindra frá V.Í.S. með hamingjuóskum með 70 ára afmæli félagsins og í vígslu vallarins. Að þessu loknu var strengdur borði í markið með nöfnum styrkta r aðila framtaksins sem eru Olís, EIMSKIP, Vátryggingafélag Íslands og KB. banki .

Klipptu þeir Geir og Albert á borðann og opnuðu þannig völlin formlega til notkunar. Að þessu loknu léku yngstu flokkar Sindra vígsluleik undir stjórn Sigga Malla og Sindra Ragnarssonar. Í tilefni vígslunnar bauð Olís upp á kaffi og bakkelsi að lokinni athöfn.

Auk Geirs Þorsteinssonar framkvæmdastj. KSÍ voru með í förinni knattspyrnukappinn Eyjólfur Sverrisson sem hefur umsjón með sparkvallaverkefni KSÍ . Hafði hann nóg að gera við að gefa ungum aðdáendum eiginhandaráritun. Sigurður R. Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ, sem er einnig kunnur knattspyrnukappi og lék með KR á síðasta keppnistímabili og Jóhann Kristinsson vallarstjóri Laugardalsvallar. Eyjólfur og Sigurður R. mættu síðan á æfingu hjá Sævari Þór hjá 4.flokki og aðstoðuðu hann.

Það er óhætt að fullyrða að þetta var merkur dagur í íþróttasögu Hornafjarðar og gleðilegt innlegg í upphafi 70 ára afmælis Sindra en Sindri hefur einmitt séð um framgang knattspyrnu hér á Hornafirði í gegnum árin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica