Desember
Hestar 061204
Hestar 061204
Hlutu viðurkenningar á aðalfundi Félags hrossabænda sem haldinn var í 6. desember 2004 (Mynd Björn Jónsson)

07.12.2004 Desember

Hlutu viðurkenningar á aðalfundur Félags hrossabænda

Í gær var haldinn aðalfundur Félags hrossabænda - Hornafjarðardeildar þar voru m.a. veitt verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin í flokki 4 vetra, 5. vetra og 6 vetra og eldri í héraðinu á árinu 2003 og 2004. Veittar voru viðurkenningar til ræktenda eða eigenda kynbótahrossa sem voru sýnd á þessum tíma. Í Stjórn Félags hrossabænda - Hornafjarðardeild eru Ómar Antonsson, Pálmi Guðmundsson og Ingólfur Vopni Ingvason


Eftirfarandi aðilar hlutu viðurkenningar:

Örn Bergsson, Hofi I
- Mökkur frá Hofi I, hæsti dómur í flokki 4v. stóðhesta 2004
- Þula frá Hofi I, hæsti dómur í flokki 4v. hryssna 2004
- Hylling frá Hofi I, hæsti dómur í flokki 6v. og eldri hryssna 2004

Melrós Eysteinsdóttir, Höfn
- Örn frá Kanastöðum, hæsti dómur í flokki 4v. stóðhesta 2003
- Örn frá Kanastöðum, hæsti dómur í flokki 5v. stóðhesta 2004

Ómar Antonsson, Horni I
- Sara frá Horni I, hæsti dómur í flokki 5v. hryssna 2004

Pálmi Guðmundsson, Lækjarbrekku
- Gullveig frá Feti, hæsti dómur í flokki 5v. hryssna 2003

Ágúst Ólafsson, Lækjarbrekku og
Eyjólfur Kristjónsson, Ási
- Skipting frá Ási, hæsti dómur í flokki 4v. hryssna 2003

Þrúðmar Sigurðsson, Miðfelli
- Fantasía (Dimmalimm) frá Meðalfelli, hæsti dómur í flokki 6v. og eldri hryssna 2003

Olgeir Karl Ólafsson, Bjarnanesi 1,
- Tígull frá Bjarnanesi 1, hæsti dómur í flokki 6.v og eldri stóðhesta 2003

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica