Desember
Markaður_Siggi og Þorgeir
Markaður_Siggi og Þorgeir
Sigurður Karlsson og Þorgeir Kristjánsson að ná sér í laufabrauð
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

07.12.2004 Desember

Jólamarkaðsstemning í Hornabæ

Það var sannkölluð markaðsstemning á jóla-markaðstorginu í Hornabæ á laugardaginn. Fjöldi fólks kom, bæði til að versla, fá sér kaffi eða skoða það sem á boðstólum var. Markaðsvarningur var fjölbreyttur og margt eigulegra muna á boðstólum Mikið var af fallegum málverkum og myndum, allskonar handunnum munum,hannyrðum glervöru og skartgripum. Sævar Kristinn var að vanda vinsæll með svínakjötið, borð kvenfélagskvenna úr Suðursveit svignaðu undan allskonar tertum og brauðum og Slökkvitækjaþjónusta Hornafjarðar var með öll þau öryggistæki í eldvörnum sem fólk þarf að eiga.

Síðasta Markaðstorg fyrir jól verður 18.desember og má alveg búast við að þá verði enn líflegra og auðvitað ennþá meiri jólastemning.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica