Desember
Hressilegir jólasveinar
Hressilegir_jolasveinar
Hressilegir jólasveinar
Mynd 1 af 3
1 2 3

06.12.2004 Desember

Kveikt á jólatrénu.

Ljós voru tendruð á jólatré Hornafjarðarbæjar í gær. Athöfnin byrjaði kl. 17 með leik Lúðrasveitarinnar,Þórgunnur Torfadóttir aðstoðarskólastjóri í Hafnarskóla flutti ávarp,leikskóla-og kvennakórarnir sungu, Séra Fjölnir Ásbjörnsson flutti hugvekju og svo komu þeir sem allir krakkar biðu eftir, þrír hressilegir jólasveinar. Ljósin á jólatrénu kveikti lítil telpa, Sesselja Mist Ólafsdóttir. Þó mikið rigndi á Hornafirði í gær var fjölmenni viðstatt jólatrésathöfnin, og fólk lét vætuna ekki á sig fá ,fór bara í regnfötin, spennti upp regnhlífar og mætti á svæðið í jólaskapi. Að þessu sinni var bæjar-jólatréð fengið frá Hallormsstað.

Í gær var einnig kveikt á jólatré við Hafnarkirkju en það tré er frá Lionsmönnum.
Miklar og fallegar ljósaskreytingar eru komnar á hús og í garða um allan bæ.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica