Desember
Akurey_Smakkað á hákarli
Akurey_Smakkað á hákarli
Smakkað á hákarlinum sem Öddi Þorbjörns bauð uppá
Mynd 2 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

04.12.2004 Desember

Menningarmiðstöð tekur við varðveislu Akureyjar

Í dag fór fram undirritun á samningi um varðveislu Akureyjar SF 52. Samningurinn er á milli Garðeyjar ehf og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar með þátttöku og stuðningi Útvegsmannafélags Hornafjarðar, Vökuls-Stéttarfélags og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Samningurinn var undirritaður um borð í Akurey. Gísli Sverrir Árnason bauð gesti velkomna og fór yfir sögu Akureyjar og sagði að nú tæki Menningarmiðstöð Hornafjarðar við skipinu til varðveislu og að það væri ósk sín að þessi undirskrift væri áfangi í uppbyggingu enn öflugra sjóminjasafns en við hefðum í dag og þetta væri jafnframt liður í endurreisn gamla hafnarsvæðisins.Ennfremur þakkaði hann eigendum Garðeyjar ehf fyrir að fela Menningarmiðstöðinni varðveislu skipsins og þann ríkulega heimanmund sem því fylgdi sem var 1,500.000 kr.

Þegar skrifað hafði verið undir tilskylda pappíra bauð Albert Eymundsson bæjarstjóri öllum viðstöddum á Kaffihornið í hádegishressingu. Það er ánægjulegt að komin sé samstaða um áframhaldandi veru Akureyjar á hafnarbakkanum og verður hún þar áfram sem verðugur minnisvarði útgerðar á Hornafirði. Akurey SF 52 hefur sett svip á hafnarsvæðið síðan henni var komið fyrir á hafnarbakkanum innst í Hornafjarðarhöfn, ásamt netum og fleiru sem tilheyrði útgerð hennar.

Akurey er 106 rúmlesta eikarbátur smíðaður í Danmörku og kom nýr til heimahafnar á Hornafirði vorið 1963. Akurey var lengst af í eigu Hauks Runólfssonar hf. en auk Hauks voru Ágúst bróðir hans og Ásgeir Núpan eigendur fyrirtækisins. Skipið hefur undanfarin ár verið í eigu útgerðarfélagsins Garðeyjar ehf. sem tókst á hendur að varðveita skipið og koma því fyrir þar sem það er nú. Í fyrstu áhöfninni sem lögskráð var á Akurey í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 24.apríl 1963 voru:

Haukur Runólfsson skipstjóri
Sigurður Pálsson stýrimaður
Pétur Sigbjörnsson 1.vélstjóri
Bragi Bjarnason 2. vélstjóri
Ásgeir Núpan háseti
Halldór Kárason háseti
Gísli Bjarnason matsveinn.

Þær eru ófáar myndirnar sem ferðafólk hefur tekið og látið taka af sér um borð í Akurey eða á svæðinu við hana og algengt er að sjá ferðafólk sitja þar með nestið sitt og njóta umhverfisins. Akurey hefur skipað stórt sæti í dagsskrá humarhátíða á Hornafirði síðan þær hófust fyrir 10 árum utan einu sinni. Fyrstu tvær humarhátíðarnar var Akurey, sem þá var á floti, notuð sem veitingastaður og krá. Eftir að henni var komið fyrir uppi á hafnarbakkanum hefur hún verið hluti af hátíðarsvæðinu, þar hefur harmonikku músíkin dunað. Margir hafa talað um að þeir hafi gaman af að fara með ferðafólk og gesti niður að höfn, fara um borð í Akurey og njóta yfirsýnar yfir höfnina, skoða veiðarfæri og það útgerðardót sem þar er.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica