Desember
Meistaraflokkur Sindra 2003
Meistaraflokkur Sindra 2003

04.12.2004 Desember

Frábær árangur hjá meistaraflokk Sindra, til hamingju

Meistaraflokkur Sindra fór að keppa í íslandsmóti innanhús í efstudeild helgina 27 og 28 nóv. Í riðli með Sindra voru Íslandsmeistarar FH, Fylkir og IA. Tvö efstu liðin í riðlinum kemst áfram í áttaliða úrslit og neðsta liðið fellur niður um deild. Í fyrstu umferð var FH - Sindri 2-1 og skoruðu FH menn sigurmarkið er voru 10 sek. eftir af leiknum. Kristinn Þór skoraði mark mótsins í þessum leik, með glæsilegri bakfallsspyrnu (hjólhestaspyrna). Næsti leikur var við IA og þeir tóku okkur frekar ódýrt eða ÍA - Sindri 5 - 2. Halldór Steinar Vífilsson með bæði okkar mörk. Tveir leikir búni og ekkert stig, útlitið frekar svart en Fylkir voru ekki heldur að ganga vel og voru bara með eitt stig og því um hreinan úrslita leik í síðustu umferð á milli okkar og Fylkis en þeim nægðu jafntefli að halda sér uppi. Það byrjaði ekki glæsilega er þeir byrjuðu á að skora 1-0 en við klóruðum í bakkann og náðum að jafna fyrir leikhlé með góðri baráttu Gísla Frey, vann boltann af Fylkismönnum á þeirra vallarhelming skaut öruggleg framhjá markverði Fylkismanna 1-1 í leikhlé.

Það var svo ekki fyrr en um miðjan seinni hálfleik er dró til tíðinda en það var horn sem Fylkismenn áttu, sendu hann á nærstöng og þar var klafs um boltann sem endaði með því að Fylgismaður féll við í vítateignum og heimtuðu víti en Nesír markvörður Sindra var fljótur að átta sig sendi fram á Gísla Frey er var aleinn og skoraði örugglega með föstu skoti 2-1 fyrir Sindra. Nú fóru fram æsilegar mínútur þar sem Fylgismenn reyndu að jafna en Sindramenn voru sterkir fyrir og uppskáru svo mark undir lokinn er þeir fengu óbeina aukaspyrnu við vítateig Fylgismanna þar sem Gísli fullkomnaði þrennuna sína með föstu hnitmiðuðu skoti sem markvörður Fylkis átti ekki möguleika á að verja 3-1 og þar með var Sindri búinn að brjóta blað í sögu Sindra með því að ná að halda sér í efstudeild. Til hamingju strákar.

Svona endaði riðillinn.
FH 9 stig
ÍA 4 stig
Sindri 3 stig
Fylkir 1 stig

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica