Desember
Norðurís
Norðurís

08.12.2004 Desember

Mun NorðurÍs festa rætur sínar á Hornafirði?

Merkur dagur er framundan hjá NorðurÍs. Nú er allt komið á fullan skrið í gömlu mjólkurstöðinni við Dalbraut. Verið er að framleiða bragðefni til að fylla einn gám. Þann 13. janúar nk. fer frá Reykjavík skip áleiðist til Rotterdam með tuttugu feta gám fullan af NorðurBragði. Þaðan verður gámurinn fluttur sem leið liggur til Valencia á Spáni, þar sem NorðurBragðið verður notað í sjávarréttasósur. Sjávarréttasósurnar verða ma. notaðar í hinn fræga spánska rétt paella. Hornfirðingar sem fara á næstunni til Spánar og gæða sér þar á sjávarréttar paella eða pælu eins og landinn kallar hana gjarnan, geta átt von á því að sjávarbragðið sé fengið úr NorðurBragði. Halldór Árnason sagði að því miður væri enn tvísýnt um framtíð félagsins. Það krefðist verulegs fjárhagslegs úthald að hasla nýju fyrirtæki völl á alþjóða markaði með svo nýstárlega vöru.

Árangur þrotlauss markaðsstarfs á undanförnum árum væri nú að koma í ljós. Hinsvegar væri því ekki að leyna að félagið ætti eftir að fara yfir mjög erfiðan fjárhagslegan hjalla á komandi ári. Það er þrátt fyrir þennan góða árangur í sölu til Spánar. Mikill árangur af markaðsstarfi í Bandaríkjunum, er að skila sér í ört vaxandi sölum. Búast má við verulegum vexti á næstu tveimur árum. Það er félaginu millusteinn um háls að þurfa jafnhliða dýru markaðsstarfi að standa undir verksmiðju eins og er í gömlu mjólkurstöðinni meðan ekki tekst að nýta hana til fulls. Halldór sagðist hafa góðar vonir um að það takist að halda starfseminni hér á Hornafirði. Það verður þó ekki gert nema í samvinnu við Hvata ehf. sem ætti húsnæðið. Ljóst er þó að Hvati hefur ekki burði til að standa á bak við NorðurÍs nema með virkum stuðningi bæjarfélagins og Landsbankans, sem þurfa að taka langtímahagsmuni sína fram yfir skammtíma hagsmuni til að þetta gangi upp. Halldór segir að ef allir leggjast á eitt séu góðar líkur á því að NorðurÍs festi rætur sínar á Hornfirði og verði mikilvægur þáttur í atvinnulífinu hér.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica