Desember
Nýheimar
Nýheimar.

03.12.2004 Desember

Málþing, Þekkingarsetur í nútíð og framtíð

Næstkomandi miðvikudag verður haldið málþing í Nýheimum undir heitinu "Þekkingarsetur í nútíð og framtíð". Á málþinginu verða fyrirlestrar sem fjalla um þekkingarsetur og það sem þeim tengist. Þeir sem halda fyrirlestra eru m.a. Rögnvaldur Ólafsson, dósent og forstöðumaður Stofnunar Fræðasetra Háskóla Íslands, hann mun ræða uppbyggingu þekkingarsetra, aðkomu HÍ og samstarfsleiðir, Jörundur Svavarsson, prófessor heldur fyrirlestur um uppbygging háskólaseturs á Suðurnesjum, rannsóknasvið og skipulag, Helgi Björnsson, jöklafræðingur ræðir Jöklarannsóknir á Austurlandi, jöklasafn og tengsl við uppbyggingu ferðþjónustu. Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar mun fjalla um stuðning Vegagerðarinnar við rannsóknir tengdar samgöngumálum.

Þátttakendum mun verða skipt upp í hópa og munu þeir ræða sóknarfæri Nýheima og eflingu þess sem þekkingarseturs. Að lokum munu verða umræður um málefnið. Stjórnandi málþingsins verður Orri Hlöðversson.

Sjá dagskrá málþings.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica