Desember
Bíllinn sem keyrði út af veginum í Lóni
Bíllinn sem keyrði út af veginum í Lóni
Bíllinn sem keyrði út af veginum í Lóni, bíllinn er talin ónýtur.

03.12.2004 Desember

Tvö umferðaróhöpp í þessari viku

Óvenju mikil ísing hefur komið næstum fyrirvaralaust undanfarna daga, stundum á stuttum vegaköflum þannig að ökumenn hafa ekki verið henni viðbúnir sem skyldi. Tvö umferðaróhöpp hafa orðið í þessari viku í nágrenni Hafnar annað í Nesjum og hitt við Brekku í Lóni. Í báðum tilfellum sluppu ökumenn og farþegi án meiðsla en ökutæki mikið skemmd. Full ástæða er því til að ökumenn hafi sérstaka aðgæslu við akstur og séu viðbúnir ísingarblettum þó færð virðist í góðu lagi og það hefur sýnt sig í þessum tilfellum báðum að ekki þarf langan hálkublett til að illa fari.

Tjón bíleigenda er mikið þó kaskótryggingar séu á bílum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica