Jóla-markaðstorg í Hornabæ
Jóla-markaðstorg verður í Hornabæ laugardagana 4.og 18.desember n.k. Í byrjun vikunnar voru skráðir 24 söluaðilar fyrir 4.des og von var á fleirum. Þetta er meiri þátttaka en verið hefur áður og söluvarningur eftir því fjölbreyttur. Mikið verður um allskonar hannyrðir,handunnar glervörur, keramik, skartgripir frá Jóni Halldóri gullsmið, málverk, trémunir og ótalmargt fleira. Kvenfélagið Ósk í Suðursveit verður með kökusölu og víst er að þar verður margt gómsætt, því Suðursveitarkonur kunna vel til verka í köku og brauðbakstri . Lísa Þorsteins sér um kaffiveitingar og stefnt er á að fá börn úr tónskólanum til að spila fyrir markaðsgesti. Margir nýir sölumenn verða á markaðstorginu.
Svo er bara að mæta á staðinn í jólaskapi og taka þátt í að skapa skemmtilega jólastemningu. Markaðstorgið verður opið frá kl. 11 -16.





Skrifa athugasemd