Desember

Rakettan Hnífur sem er innkölluð

Innköllun á gölluðum flugeldum á Höfn - 31.12.2004 Desember

Björgunarfélag Hornafjarðar í samráði við Slysavarnafélagið Landsbjörgu hefur ákveðið að innkalla eina tegund flugelda vegna galla. Rakettan ber tegundarheitið Hnífur og er hluti af vopnabúrs vörulínu Flugeldamarkaða Björgunarsveitanna. Við öryggisprófanir flugeldasérfræðinga Slysavarnafélagsins Landsbjargar komu í ljós að hluti af rakettum sem skotið var upp virkuðu ekki sem skyldi og sprungu of neðarlega. Raketturnar voru teknar strax úr sölu í kjölfarið. Lesa meira
 

Mikil hálka hefur verið á flestum vegum - 30.12.2004 Desember

Síðustu daga hefur verið mikil hálka á flestum vegum innan Sveitarfélagsins og í dag var fljúgandi hálka í sunnanverðu Lóni og hvassviðri. Ekki hafa orðið nein umferðarslys um hátíðina þó akstursskilyrði hafi ekki verið sem best utan smá óhapps í dag er ökumaður réði ekki við bíl sinn í hálkunni. Lögreglan segist hafa átt róleg og góð jól og bæjarbúar hafi verið hreint til fyrirmyndar. Veðurspá er leiðinleg fyrir síðasta dag ársins en ekki skal örvænta strax um gott veður fyrir flugelda og brennu því komið hefur fyrir að veðurspár rætast ekki og veður verða betri en spáð er. Lesa meira
 
Afgreiðsla flugeldasölunnar

Yfirleitt rólegt fyrsta daginn í flugeldasölunni - 29.12.2004 Desember

Björgunarsveitin byrjaði flugeldasölu sína í gær í Slysavarnahúsinu Höfn. Ludvig H. Gunnarsson (Lúlli) hefur sem fyrr umsjón með sölunni. Hann sagði að yfirleitt væri rólegt fyrsta daginn þá væru það helst krakkarnir sem kæmu að kaupa ,,smádótið”. Lúlli segir að terturnar séu langvinsælastar en svo séu sumir sem vilji bara flugelda, rakettur og smádót fyrir börnin. En hvað skyldi svo ljósadýrðin á gamlaárskvöld kosta? Lúlli var fús til að upplýsa okkur um það: Kappaterturnar kosta frá 2.400 kr. uppí 6.900. ,,Bardagar” eru á 12.900 og 15.900 kr. og það er alflottasta tertan, heill kassi með einum kveik. Lúlli segist líka eiga tvö stykki af einhverjum svakalega flottum flugeldum sem hann segist ekki muna nafnið á og þeir 24.900 kr. Venjulegir fjölskyldupakkar koma í þrem stærðum og er verð þeirra 3.100, 4.500 og 5.300 kr. Lesa meira
 
Glitský yfir Hornafirði 22.desember (Mynd Virnir Júlíusson)

Hvað eru Glitský og hvers vegna birtast þau? - 23.12.2004 Desember

Óvenju mikið var um glitský í gær og mikil litadýrð. Margir hringdu í fréttamenn hjá Hornafjörður.is og mikið var um að fólk væri að taka myndir af litadýrðinni sem blasti við á annars heiðum himni í morgunbirtunni nú þegar dagurinn er einu hænufeti lengri en í gær. Einars Sveinbjörnssonar deildarstjóra hjá Veðurstofunni segir að glitský, einnig nefnd perlumóðurský eða ísský myndist í heiðhvolfinu gjarnan í um 25 km. hæð. Venjuleg ský eins og við þekkjum þau helst ná sjaldnast á okkar slóðum upp fyrir 12 km hæð eða upp að endimörkum veðrahvolfsins við veðrahvörfin. Glitskýin samanstanda af örsmáum ískristöllum, sem myndast við þegar sá litli raki sem til staðar er þetta hátt upp nær að þéttast við sérstakar aðstæður. Glitskýja er helst að vænta um miðjan vetur og eftir sólarlag og fyrir sólaruppkomu geta þau verið böðuð sólskini, þótt aldimmt sé við jörð. Tilurð þeirra tengist myndun mikils kuldahvirfils yfir norðurpólnum sem nær hámarki í desember og janúar. Lesa meira
 
Karlakórinn Jökull

Vel heppnaðir jólatónleikar í Hafnarkirkju - 22.12.2004 Desember

Eins og hefð er orðin, hélt Karlakórinn Jökull sína árlegu jólatónleika í Hafnarkirkju síðastliðið sunnudagskvöld. Hafnarbúar og nærsveitamenn ásamt gestum fjölmenntu á tónleikana og þegar allt var talið með og ásamt flytjendum þá voru um 430 manns í Kirkjunni. Þó var haft á orði að vantaði í hópinn þar sem barnakórarnir voru ekki með í þetta sinn. Karlakórinn hefur staðið fyrir þessu tónleikahaldi sem er orðinn órjúfanlegur partur af hefðinni hjá mörgum sýslubúum í fjöldamörg ár og hefur notið dyggrar aðstoðar bæði kóra og annars tónlistarfólks á staðnum. Lesa meira
 
Jólapakkaball Þrykkjunnar

Jólapakkaballið og jólablað Þrykkjunnar - 19.12.2004 Desember

Hið árlega Jólapakkaball Þrykkjunnar haldið í Pakkhúsinu sl. fimmtudagskvöld. Þetta hefur verið einn af föstum punktum í starfi félagsmiðstöðvarinnar undanfarin ár og lukkast vel. Krakkarnir komu í jólaskapi hvert og eitt með jólapakka sem þau settu í stórann poka og síðan gáfu jólasveinar hverjum og einum gesti pakka úr pokanum. Þá hafa fyrirtæki gefið jólapakka sem eru dregnir út úr númerum á aðgöngumiðunum og vöktu þeir mikla lukku. |nl|Hljómsveitin MÍR tók nokkra létta rokkara á ballinu og síðan tóku ýmsir frægir tónlistarmenn lagið í gegnum tövuna og kerfið. Pakkhúsið var vel skreytt jólaljósum og öðru sem tilheyrir jólunum. Jólapakkaballið var haldið í Pakkhúsinun vegna þess að verið er að taka Sindrabæ í gegn en þar er Þrykkjan með starfsemi sína. Það er reiknað með því að strax á nýju ári verði flutt þar inn aftur í endurbætta aðstöðu. Lesa meira
 
Lord of the Rings The Return of the King (a)

Kvikmyndasýningar hefjast að nýju í byrjun febrúar - 18.12.2004 Desember

Verið er að gera gagngerar endurbætur á kvikmyndasalnum í Sindrabæ en fyrirhugað er að Tónskólinn verði þar með kennslustofu og nota salinn undir smærri tónleika. Einnig mun félagsmiðstöðin Þrykkjan hafa þar aðstöðu fyrir kvikmyndaklúbbinn sinn. Sökum þessara breytinga er verið að skipta út stólum, allt málað, nýr dúkur settur á gólf og hljóðkerfið verður endurbætt. Gömlu stólarnir hverfa og nýir koma í staðinn en þeir eru innfluttir og eru sérstaklega gerðir fyrir sal sem þennan. Reiknað er með að salurinn opni í byrjun febrúar á næsta ári. Lesa meira
 
Ratsjárstöðin H3 Stokksnesi

Aukin sjálfvirkni í ratsjárstöðvunum - 15.12.2004 Desember

Ákveðið hefur verið að auka sjálfvirkni í rekstri ratsjárstöðva Ratsjárstofnunar þannig að í staðinn fyrir mannaða sólarhringsvakt í öllum fjórum stöðvum stofnunarinnar verður þremur ratsjárstöðvum í framtíðinni fjarstýrt frá ratsjárstöðinni á Miðnesheiði. Á næstu mánuðum verður unnið að því að koma upp nauðsynlegum búnaði þannig að hægt verði að tengja stöðvarnar við stöðina á Miðnesheiði. Gert er ráð fyrir að sjálfvirkni í rekstri stöðvanna aukist í áföngum og verði að fullu komin til framkvæmda haustið 2007. Þessi breyting mun hafa í för með sér uppstokkun og fækkun í starfsliði Ratsjárstofnunar og hefur stofnunin því hafið samráð við trúnaðarmenn starfsmanna um fyrirhugaðar breytingar í samræmi við lög um nr. 69/2000 um hópuppsagnir. Lesa meira
 
Hrútur á flótta

Hrútur á flótta undan lögreglunni á Höfn - 14.12.2004 Desember

Lögreglan á Höfn, ásamt nokkrum bæjarbúum, lenti í óvenjulegum eltingarleik í gærkvöldi. Hrútur, sem talið er að hafi komið utan af Ægisíðu, sást á rölti inni í bænum, líklega að virða fyrir sér alla jólaljósadýrðina. Lögreglan fór á stað og hugðist handsama hrútinn ásamt nokkrum vöskum mönnum. Ekki gekk sú handtaka greiðlega því hrúturinn reyndist frár á fæti og barst eltingarleikurinn víða um bæinn m.a. um íþrótta-og sparkvöllinn. En hrúturinn átti við ofurefli að etja og við Olís endaði þessi ójafni eltingarleikur þegar Ómar Fransson náði að góma hrútinn og með góðri aðstoð var honum komið í hendur lögreglunnar. Ekki vissi lögreglan í gærkvöldi hver væri eigandi hrútsins, en málið væri í rannsókn og beðið var komu mark-glöggs manns. Lesa meira
 
Löggildingarstofa jólatré

Látum ekki rafmagnið setja brennimark sitt á heimilið um jólin - 13.12.2004 Desember

Rafmagn er einn stórvirkasti brennuvargur nútímans. Á hverju ári verða margir eldsvoðar sem eiga upptök sín í rafbúnaði. Stundum kviknar í vegna bilunar en oftast er um að ræða að gáleysi í umgengni við rafmagn valdi slysum eða íkveikju. Jólin eru hátíð ljóssins og er þá kveikt á fleiri ljósum og þau oft látin loga lengur en aðra daga ársins. Hluti af undirbúningi jólanna á að vera að ganga úr skugga um að þau ljós sem nota á séu í góðu lagi. Óvandaður, skemmdur og rangt notaður ljósabúnaður getur valdið bruna og slysum. Lesa meira
 
Vígsla Sparkvallar KSÍ

Vígsla Sparkvallar KSÍ - 10.12.2004 Desember

Á mánudaginn var sparkvöllur KSÍ og sveitarfélagsins formlega vígður. Við það tækifæri komu góðir gestir í heimsókn frá Knattspyrnusambandi Íslands. Athöfnina hófst með ávarpi Geirs Þorsteinssonar framkvstj. KSÍ Að því loknu afhenti hann Heppuskóla fótbolta og eins fékk knd. Sindra gjafabréf upp á 20 bolta frá styrktaraðilum sem Jóhanna Stígsdóttir veitti viðtöku. Þá flutti Albert Eymundsson bæjarstjóri ávarp og þakkaði öllum þeim sem komu að framkvæmd vallarins fyrir frábært framtak. Útgerðarfyrirtækið Skinney - Þinganes gaf öllum nemendum í 5., 6., og 7. bekk í Hafnarskóla fótbolta og var mikið fjör þegar nemendurnir sóttu hver og einn sinn bolta en búið var að merkja þá með nafni hvers nemanda. Veglegur blómvöndur barst til umf. Sindra frá V.Í.S. með hamingjuóskum með 70 ára afmæli félagsins og í vígslu vallarins. Að þessu loknu var strengdur borði í markið með nöfnum styrkta r aðila framtaksins sem eru Olís, EIMSKIP, Vátryggingafélag Íslands og KB. banki . Lesa meira
 
Norðurís

Mun NorðurÍs festa rætur sínar á Hornafirði? - 08.12.2004 Desember

Merkur dagur er framundan hjá NorðurÍs. Nú er allt komið á fullan skrið í gömlu mjólkurstöðinni við Dalbraut. Verið er að framleiða bragðefni til að fylla einn gám. Þann 13. janúar nk. fer frá Reykjavík skip áleiðist til Rotterdam með tuttugu feta gám fullan af NorðurBragði. Þaðan verður gámurinn fluttur sem leið liggur til Valencia á Spáni, þar sem NorðurBragðið verður notað í sjávarréttasósur. Sjávarréttasósurnar verða ma. notaðar í hinn fræga spánska rétt paella. Hornfirðingar sem fara á næstunni til Spánar og gæða sér þar á sjávarréttar paella eða pælu eins og landinn kallar hana gjarnan, geta átt von á því að sjávarbragðið sé fengið úr NorðurBragði. Halldór Árnason sagði að því miður væri enn tvísýnt um framtíð félagsins. Það krefðist verulegs fjárhagslegs úthald að hasla nýju fyrirtæki völl á alþjóða markaði með svo nýstárlega vöru. Lesa meira
 
Hestar 061204

Hlutu viðurkenningar á aðalfundur Félags hrossabænda - 07.12.2004 Desember

Í gær var haldinn aðalfundur Félags hrossabænda - Hornafjarðardeildar þar voru m.a. veitt verðlaun fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin í flokki 4 vetra, 5. vetra og 6 vetra og eldri í héraðinu á árinu 2003 og 2004. Veittar voru viðurkenningar til ræktenda eða eigenda kynbótahrossa sem voru sýnd á þessum tíma. Í Stjórn Félags hrossabænda - Hornafjarðardeild eru Ómar Antonsson, Pálmi Guðmundsson og Ingólfur Vopni Ingvason Lesa meira
 
Markaður_Siggi og Þorgeir

Jólamarkaðsstemning í Hornabæ - 07.12.2004 Desember

Það var sannkölluð markaðsstemning á jóla-markaðstorginu í Hornabæ á laugardaginn. Fjöldi fólks kom, bæði til að versla, fá sér kaffi eða skoða það sem á boðstólum var. Markaðsvarningur var fjölbreyttur og margt eigulegra muna á boðstólum Mikið var af fallegum málverkum og myndum, allskonar handunnum munum,hannyrðum glervöru og skartgripum. Sævar Kristinn var að vanda vinsæll með svínakjötið, borð kvenfélagskvenna úr Suðursveit svignaðu undan allskonar tertum og brauðum og Slökkvitækjaþjónusta Hornafjarðar var með öll þau öryggistæki í eldvörnum sem fólk þarf að eiga. Lesa meira
 
Hressilegir jólasveinar

Kveikt á jólatrénu. - 06.12.2004 Desember

Ljós voru tendruð á jólatré Hornafjarðarbæjar í gær. Athöfnin byrjaði kl. 17 með leik Lúðrasveitarinnar,Þórgunnur Torfadóttir aðstoðarskólastjóri í Hafnarskóla flutti ávarp,leikskóla-og kvennakórarnir sungu, Séra Fjölnir Ásbjörnsson flutti hugvekju og svo komu þeir sem allir krakkar biðu eftir, þrír hressilegir jólasveinar. Ljósin á jólatrénu kveikti lítil telpa, Sesselja Mist Ólafsdóttir. Þó mikið rigndi á Hornafirði í gær var fjölmenni viðstatt jólatrésathöfnin, og fólk lét vætuna ekki á sig fá ,fór bara í regnfötin, spennti upp regnhlífar og mætti á svæðið í jólaskapi. Að þessu sinni var bæjar-jólatréð fengið frá Hallormsstað. Lesa meira
 
Sigurlaug Gissurardóttir í Árbæ

Á aðfangadagskvöld var alltaf lambasteik - 04.12.2004 Jólagestir

Það er ljúft að líta til baka og rifja upp jólahald á bernskuheimili mínu. Ég fæddist og ólst upp á Herjólfsstöðum í Álftaveri í Vestur Skaftafellssýslu. Á heimilinu voru auk foreldra minna og systkina, föðurafi og amma. Föðursystkini mín, þau Lára og Loftur áttu þar einnig heimili en stunduðu vinnu fjarri heimahögum, einnig ungur piltur sem kom inn á heimilið fermingarárið sitt og dvaldi þar upp frá því, en stundaði nám yfir veturinn, fyrst í Skógaskóla og nam síðan skipasmíði. Afi lést þegar ég var sjö ára en ég var tvítug þegar amma kvaddi þennan heim. |nl|Í byrjun jólaföstu drógum við Þura systir fram jólasveinabókina okkar. Við vorum elstar en síðar tóku yngri systkini okkar við. Í hana skrifuðum við niður alla gesti sem komu fram til jóla og snemma var nú metnaðurinn kominn fram og spenningurinn snérist um það hvort við heimtum fleiri jólasveina heldur en krakkarnir í vesturbænum. Lesa meira
 
Akurey_ undirskriftin

Menningarmiðstöð tekur við varðveislu Akureyjar - 04.12.2004 Desember

Í dag fór fram undirritun á samningi um varðveislu Akureyjar SF 52. Samningurinn er á milli Garðeyjar ehf og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar með þátttöku og stuðningi Útvegsmannafélags Hornafjarðar, Vökuls-Stéttarfélags og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Samningurinn var undirritaður um borð í Akurey. Gísli Sverrir Árnason bauð gesti velkomna og fór yfir sögu Akureyjar og sagði að nú tæki Menningarmiðstöð Hornafjarðar við skipinu til varðveislu og að það væri ósk sín að þessi undirskrift væri áfangi í uppbyggingu enn öflugra sjóminjasafns en við hefðum í dag og þetta væri jafnframt liður í endurreisn gamla hafnarsvæðisins.Ennfremur þakkaði hann eigendum Garðeyjar ehf fyrir að fela Menningarmiðstöðinni varðveislu skipsins og þann ríkulega heimanmund sem því fylgdi sem var 1,500.000 kr. Lesa meira
 
Meistaraflokkur Sindra 2003

Frábær árangur hjá meistaraflokk Sindra, til hamingju - 04.12.2004 Desember

Meistaraflokkur Sindra fór að keppa í íslandsmóti innanhús í efstudeild helgina 27 og 28 nóv. Í riðli með Sindra voru Íslandsmeistarar FH, Fylkir og IA. Tvö efstu liðin í riðlinum kemst áfram í áttaliða úrslit og neðsta liðið fellur niður um deild. Í fyrstu umferð var FH - Sindri 2-1 og skoruðu FH menn sigurmarkið er voru 10 sek. eftir af leiknum. Kristinn Þór skoraði mark mótsins í þessum leik, með glæsilegri bakfallsspyrnu (hjólhestaspyrna). Næsti leikur var við IA og þeir tóku okkur frekar ódýrt eða ÍA - Sindri 5 - 2. Halldór Steinar Vífilsson með bæði okkar mörk. Tveir leikir búni og ekkert stig, útlitið frekar svart en Fylkir voru ekki heldur að ganga vel og voru bara með eitt stig og því um hreinan úrslita leik í síðustu umferð á milli okkar og Fylkis en þeim nægðu jafntefli að halda sér uppi. Það byrjaði ekki glæsilega er þeir byrjuðu á að skora 1-0 en við klóruðum í bakkann og náðum að jafna fyrir leikhlé með góðri baráttu Gísla Frey, vann boltann af Fylkismönnum á þeirra vallarhelming skaut öruggleg framhjá markverði Fylkismanna 1-1 í leikhlé. |nl| Lesa meira
 

Málþing, Þekkingarsetur í nútíð og framtíð - 03.12.2004 Desember

Næstkomandi miðvikudag verður haldið málþing í Nýheimum undir heitinu "Þekkingarsetur í nútíð og framtíð". Á málþinginu verða fyrirlestrar sem fjalla um þekkingarsetur og það sem þeim tengist. Þeir sem halda fyrirlestra eru m.a. Rögnvaldur Ólafsson, dósent og forstöðumaður Stofnunar Fræðasetra Háskóla Íslands, hann mun ræða uppbyggingu þekkingarsetra, aðkomu HÍ og samstarfsleiðir, Jörundur Svavarsson, prófessor heldur fyrirlestur um uppbygging háskólaseturs á Suðurnesjum, rannsóknasvið og skipulag, Helgi Björnsson, jöklafræðingur ræðir Jöklarannsóknir á Austurlandi, jöklasafn og tengsl við uppbyggingu ferðþjónustu. Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar mun fjalla um stuðning Vegagerðarinnar við rannsóknir tengdar samgöngumálum. Lesa meira
 
Bíllinn sem keyrði út af veginum í Lóni

Tvö umferðaróhöpp í þessari viku - 03.12.2004 Desember

Óvenju mikil ísing hefur komið næstum fyrirvaralaust undanfarna daga, stundum á stuttum vegaköflum þannig að ökumenn hafa ekki verið henni viðbúnir sem skyldi. Tvö umferðaróhöpp hafa orðið í þessari viku í nágrenni Hafnar annað í Nesjum og hitt við Brekku í Lóni. Í báðum tilfellum sluppu ökumenn og farþegi án meiðsla en ökutæki mikið skemmd. Full ástæða er því til að ökumenn hafi sérstaka aðgæslu við akstur og séu viðbúnir ísingarblettum þó færð virðist í góðu lagi og það hefur sýnt sig í þessum tilfellum báðum að ekki þarf langan hálkublett til að illa fari. Lesa meira
 
Óskar Þór á Sindrahátíð

70 ára afmæli Umf Sindra - 03.12.2004 Sindra fréttir

Ungmennafélagið Sindri varð 70 ára 1.des og var þessara tímamóta minnst í íþróttahúsinu með myndarlegri afmælisveislu. Með afmæliskaffinu var rjómaterta og skúffukaka sem gerð voru góð skil. Albert Eymundsson og Magnús Jónasson fluttu ræður og einnig var blak og fimleikasýning. fjórði flokkur kvenna keppti í fótbolta við Albert og starfslið hans í ráðhúsinu. Nokkrir aðilar voru heiðraðir fyrir störf sín hjá Sindra, þau eru; |nl|Bára Baldvinsdóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir, Arnbjörg Stefánsdóttir, Herdís Tryggvadóttir, Valdimar Einarsson, Gestur Halldórsson, Ingólfur Baldvinsson og Jón Haukur Haraldsson.. Framundan er nóg að gera hjá Sindra, danskir þjálfarar koma og þjálfa fimleikadeildina dagana 10.-12. des. og einnig er verið að undirbúa jólasýninguna. Lesa meira
 
Jóna Margrét

Jóna Margrét opnar Hársnyrtistofu Ingibjargar. - 03.12.2004 Desember

Búið er að opna Hársnyrtistofu Ingibjargar aftur eftir nokkurt hlé. Jóna Margrét Jónsdóttir hársnyrtifræðingur hefur tekið aðstöðuna á leigu í eitt ár, til að byrja með. Jóna Margrét lauk hársnyrtinámi fyrir einu ári og hefur síðan unnið við hársnyrtingu í Reykjavík. ,,Ég er mjög fegin að vera komin heim aftur eftir fimm ára veru við nám og vinnu”, segir Jóna Margrét sem var byrjuð að taka á móti viðskiptavinum í gær þó ekki sé formlega opnað fyrr en kl.10 í dag. Þegar fréttamaður vefsins leit inn á hársnyrtistofuna í gær var Jóna Margrét og Ragnar Alfredson eiginmaður hennar, að taka upp hársnyrtivörur og skraut, töskur, ilmefni, olíur og margt fleira. Helstu vörumerkin sem hún býður uppá eru Wella hárvörur,Scbastian og Difi. Jóna Margrét ætlar að vinna ein á stofunni til að byrja með en segist þó vona að systir hennar komi þegar hún sé búin í skólanum á daginn og hjálpi sér. Lesa meira
 
Birna Aðalsteins að skoða grænmetið hjá Finndísi í Dilksnesi

Jóla-markaðstorg í Hornabæ - 02.12.2004 Desember

Jóla-markaðstorg verður í Hornabæ laugardagana 4.og 18.desember n.k. Í byrjun vikunnar voru skráðir 24 söluaðilar fyrir 4.des og von var á fleirum. Þetta er meiri þátttaka en verið hefur áður og söluvarningur eftir því fjölbreyttur. Mikið verður um allskonar hannyrðir,handunnar glervörur, keramik, skartgripir frá Jóni Halldóri gullsmið, málverk, trémunir og ótalmargt fleira. Kvenfélagið Ósk í Suðursveit verður með kökusölu og víst er að þar verður margt gómsætt, því Suðursveitarkonur kunna vel til verka í köku og brauðbakstri . Lísa Þorsteins sér um kaffiveitingar og stefnt er á að fá börn úr tónskólanum til að spila fyrir markaðsgesti. Margir nýir sölumenn verða á markaðstorginu. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica