Nóvember
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu @Tónskóli A-Skaft (úr myndasafni).

01.12.2004 Nóvember

Lúðrasveit Hornafjarðar sýnilegri á afmælisárinu.

Lúðrasveit Hornafjarðar verður 30 ára á næsta ári og verður afmælisins minnst með ýmsu móti og veglegri afmælishátíð. Fyrirhugað er að lúðrasveitin verði fyrirferðarmeiri í samfélagi okkar á afmælisárinu með tónleikum og ýmsum viðburðum. Ætlunin er að bjóða Lúðrasveit Vestmannaeyja hingað í febrúar og einnig er fyrirhugað að fá stærri nöfn úr tónlistargeiranum sem einleikara með hljómsveitinni á afmælistónleikum hennar segir Jóhann Morávek stjórnandi lúðrasveitarinnar. Allt kostar þetta okkur peninga, segir Jóhann, en lúðrasveitin hefur verið rekin með styrkjum frá sveitarfélaginu og menningarsjóði A-Skaft, þá hafa fáein fyrirtæki styrkt lúðrasveitina í tengslum við Sumar-Humar tónleikana og einnig hefur lúðrasveitin komið fram þar fyrir utan og þegið greiðslu fyrir. Þessi fjármögnun hefur rétt rúmlega staðið undir rekstrarkostnaði sveitarinnar.

Jóhann segir ljóst að til þess að hægt verði að gera afmælisárið veglegt þurfi að koma til meiri fjármunir og því leitar lúðrasveitin nú fjárhagslegs stuðnings hjá fyrirtækjum og öllum þeim sem vilja leggja henni lið. Það má gera með beinum fjárframlögum og með því að kaupa lúðrasveitina til að leika við hátíðleg tækifæri hjá fyrirtækjum eða einstaklingum t.d. í stórafmælum, en slíkir tónleikar kosta kr. 35 þús. Með þessu móti mætti gera Lúðrasveit Hornafjarðar sýnilegri á afmælisárinu. Jóhann vill benda stofnunum og fyrirtækjum á að hafa samband við lúðrasveitina sem fyrst, ef þau vilja láta spila fyrir sig á Þorláksmessu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica