Nóvember
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli (úr myndasafni)
Mynd 1 af 3
1 2 3

30.11.2004 Nóvember

Búið er að merkja þau tré sem í boði verða

Jólatré verða til sölu í skógræktinni í Haukafelli og við ætlum að hafa sama hátt á og var fyrir jólin í fyrra segir Rannveig Einarsdóttir. Búið er að merkja þau tré sem í boði verða þetta árið. Ég reikna með að við verðum með söluna í Haukafelli opna 12. des. og þá getur fólk komið, valið sér jólatré og fellt það. Þarna verða tré af öllum stærðum allt frá pínulitlum upp í 3-4 metra há tré. Ef ekkert af þessum merktu trjám hentar er hægt að hafa samband við okkur og við skoðum hvort hægt er að finna eitthvað annars staðar. Það var góð jólastemning í Haukafelli í fyrra þegar fólk kom að ná sér í tré, þetta er alveg ný upplifun fyrir börnin og gömlu góðu ævintýrin um Grýlu, Leppalúða og jólasveinana lifna við þarna í nálægð fjalla og jökla.

Nú er komin nýtt hús á skógræktarsvæðið fyrir starfsemina og þar er góð aðstaða til að bjóða uppá hressingu við hin ýmsu tækifæri og uppákomur á svæðinu. Foreldrar, afar og ömmur, nú er tækifærið að fara með börnin í Haukafell þar sem náttúran skartar sínu fegursta og njóta jólastemningarinnar sem þar verður.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica