Nóvember
Jólatrén skarta sínu fegursta
Jólatrén skarta sínu fegursta

29.11.2004 Nóvember

Jólatrjáasalan byrjar 10 dögum fyrir jól

Kiwanisklúbburinn Ós situr einn að sölu jólatrjáa á Höfn fyrir þessi jól fyrir utan að Skóræktarfélag A-Skaft verður með einn söludag í Haukafelli eins og á síðasta ári. Samningur náðist milli Kiwanis og verslunarinnar Krónunnar um að Krónan yrði ekki með jólatréssölu á Höfn eins og fyrir síðustu jól. ,,Þetta var allt gert í guðsfriði og góðri samvinnu milli Kiwanis og Krónunnar?, sagði Stefán Brandur Jónsson Kiwanismaður. Eins og kunnugt er fer allur ágóði sem Kiwanisklúbburinn fær af sölu jólatrjánna til góðgerðarmála. Sala byrjar um 10 dögum fyrir jól og á Stefán von á að sölugámurinn verði á miðbæjarsvæðinu.Úrval jólatrjánna verður líkt og verið hefur undanfarin ár. Reynt verður að fá þau tré sem sett verða upp við fyrirtæki og stofnanir frá skógræktarsvæðum í sýslunni.

Í fyrra var bæjar-jólatréð sótt í skógræktina í Steinadal í Suðursveit en ekki alveg á hreinu hvað gert verður núna. Stefán segir að þeir Kiwanismenn séu mjög jákvæðir fyrir að kaupa tré hér á heimaslóðum og ef að einhver á falleg jólatré þá endilega hafa samband við þá. Umsjónarmaður jólasölunnar í ár er Haukur Sveinbjörnsson í Olís.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica