Nóvember
Krakkablak
Krakkablak
Krakkablak

26.11.2004 Nóvember

Blakdeild Sindra fær þjálfara í heimsókn

Í tilefni 70 ára afmælis UMF. Sindra 1. des nk. fær blakdeildin þá Jón Ólaf Valdimarsson og Subaru Takenaka þjálfara í heimsókn. Þeir munu vera með æfingabúðir fyrir blakiðkendur, bæði þá sem eru að æfa krakkablak og fullorðna. Jón og Subaru munu einnig heimsækja Hafnar- og Heppuskóla og vera með kynningu á blakíþróttinni fyrir nemendur skólanna. Stjórn blakdeildar vonar að blakiðkendur taki vel á móti þessum frábæru þjálfurum og fjölmenni á æfingarnar.


Dagskrá heimsóknarinnar verður eftirfarandi:

Mánudagur 29. nóvember

Kl. 10:00 - 15:00 Kynning í Heppuskóla
Kl. 17:00 - 20:00 Æfingabúðir kvenna - öldungar
Kl. 20:00 - 22:00 Kynning og æfing fyrir karla - ,,old boys"

Þriðjudagur 30. nóvember

Kl. 08:30 - 14:00 Kynning í Hafnarskóla
Kl. 17:00 - 18:00 Æfing hjá krakkablakshópi 1. - 3. bekkur
Kl. 18:00 - 19:00 Æfing hjá krakkablakshópi 4. - 6. bekkur
Kl. 19:00 - 20:00 Æfing hjá krakkablakshópi 7. - 10. bekkur

KRAKKAR ATHUGIÐ BREYTTAN AFINGATÍMA!

Kl. 20:00 - 22:00 Æfingabúðir kvenna - öldungar
Til hamingju með afmælið UMF.Sindri!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica