Nóvember
Félagsmiðstöðin Þrykkjan
Félagsmiðstöðin Þrykkjan

24.11.2004 Nóvember

Þrykkjufréttir komu út í gær

Það er í ýmsu að snúast hjá unglingunum í Þrykkjunni þessa dagana. Í gær komu Þrykkjufréttir út en útgáfa þeirra hefur legið niðri um tíma. Í blaðinu er að finna viðtöl, brandara, frásagnir af Þrykkjustarfi, getraun ofl. skemmtilegt. Blaðið er allt í lit og prentað hjá Galdri ehf. Það er fjölmiðlaklúbburinn sem gefur blaðið út og fá unglingar fyrsta blaðið gefins í Þrykkjunni í kvöld á förðunardiskóinu. Þá hefur lið frá Þrykkjunni tekið þátt í spurningakeppni Samfés, Viskunni undanfarið og staðið sig mjög vel komust í átta liða úrslit en luku keppni í gær eftir snarpa viðureign við lið félagsmiðstöðvarinnar Igló í Kópavogi.

Í Þrykkjuliðinu voru: Einar B. Halldórsson úr 9. bekk Heppuskóla, Guðrún Fema Ólafsdóttir og Gunnlaugur Bragi Björnsson úr 10. bekk. Þá er framundan söngvakeppnin sem stendur til að halda út í Hrollaugsstöðum og stendur skráning yfir. Þá verður bráðlega farið að huga að jólabingóinu og jólapakkaballinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica