Nóvember
Frá borgarafundinum í Ekru
Fra_borgarafundinum_i_Ekru

23.11.2004 Nóvember

Fjárhagsáætlun fyrir 2005 komin

Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2005 var birt á bæjarstjórnarfundi sl. fimmtudag. Um kvöldið var haldinn borgarafundur í Ekru svo menn fengju tækifæri til að ræða um fjárhagsáætlunina og leggja spurningar fyrir bæjarstjórnarmenn. Allflestir fundargestir voru kennarar og snerust umræður fundarins um málefni kennara. Þetta voru góðar umræður og menn spjölluðu saman um þessi mál sagði Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar, en það var enginn áhugi fyrir umræðum um nýgerða fjárhagsáætlun. Halldóra segir að í fjárhagsáætluninni sé ákveðið að útsvar verði áfram í hámarki, fasteignagjöld verða óbreytt en lóðaleigugjald sem hefur verið ein króna á ferm. og verið óbreytt frá um 1998, verður hækkað og verður gjaldið 1 % af lóðarmati. Eftir er að ákveða hvað varðar allar framkvæmdir og hvað við gerum næsta sumar segir Halldóra, en það er mikill vilji fyrir því að fegra og prýða bænum. Næsta sumar kemur malbikunarvél á staðinn þar sem lagt verður með heitu malbiki til í Almannaskarðsgöngunum. Þessir aðilar gefa kost á að malbika bæði fyrir bæjarfélagið og einstaklinga sem vilja taka í gegn heimkeyrslur sínar eða annað. Lögð verður áhersla á framkvæmdir við miðbæjarsvæði þó ekki sé enn ljóst hvað mikið verður gert í sumar. Þetta er nú allt á frumstigi ennþá en við höfum mikinn áhuga á þessum framkvæmdum og eins að malbika útsýnisplanið úti í Óslandi og svæðið inn við Þjónustumiðstöðina .

Mikill áhugi fólks er á að fara að huga að byggingu íþróttamannvirkja á staðnum og er sundlaug þar mjög ofarlega á blaði og segir Halldóra að vilji sé fyrir því hjá bæjarstjórnarmönnum að fara að undirbúa þá framkvæmd.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica