Nóvember
Krosseyjarbryggja
Krosseyjarbryggja
Krosseyjarbryggja
Mynd 1 af 2
1 2

22.11.2004 Nóvember

Opnuð tilboð í þekju og lagnir á Krosseyjarbryggju ásamt sniðræsi fyrir fráveituna

Tvö tilboð bárust í útboði á þekju og lögnum á Krosseyjarbryggju í Hornafjarðarhöfn.. Tilboð frá Sveini Sighvatssyni var upp á kr.39.797.374, sem er 86.1 % af kostnaðaráætlun og tilboð frá G. Þorsteinssyni kr.49.989.550, en það er 108.1 % af kostnaðaráætlun. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að búið sé að fara yfir þessi tilboð sem bárust og verið sé að fara yfir tilboð lægstbjóðanda og hvernig hann muni standa að því með verktökum og undirverktökum. Málið verður væntanlega tekið fyrir í hafnarnefnd á miðvikudagskvöld n.k.
Siglingastofnun hefur lagt til að gengið verði til samninga við Svein Sighvatsson.
Hafnarstjórn mun svo taka endanlega ákvörðun um töku tilboðs.

Þá hafa einnig verið opnuð tilboð í sniðræsi fyrir Fráveituna, það er frá Silfurbrautar-ræsi að Leiðarhöfða. Þar verða sameinaðar lagnir af þessu svæði í eina útrás við Leiðarhöfða.
Tilboð komu frá Rósaberg ehf. og Jarðverki.
Tilboð Rósabergs var kr. 25.481.481.000 sem er 16 % yfir kostnaðaráætlun og Jarðverk var með tilboð upp á kr. 56.155.000 sem er 157 % yfir kostnaðaráætlun.
Helgi Már segir að samningar við Rósaberg séu hafnir og semjist um lægra verð en tilboðið hljóðar upp á, verður það borið fram á næsta bæjarráðsfundi. Verði málið samþykkt í bæjarráði verður strax byrjað á verkinu

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica