Fimleikadeild Sindra tók þátt í Íslandsmóti í fimleikum
Um helgina fóru 10 stúlkur úr Fimleikadeild Sindra til Reykjavíkur og tóku þátt í keppni á Íslandsmóti í fimleikum, 1 þrep. Stúlkurnar sem eru á aldrinum 10-15 ára, stóðu sig mjög vel og voru allar með í kringum 30 stig. Til að færast upp um þrep þarf 32 stig og það tókst þeim Önnu Mekkín Reynisdóttir og Þyrí Imsland. Að auki fengu fjórar stúlkur verðlaun, en það eru veitt 1-3 verðlaun fyrir hverja grein af þeim 4 greinum sem keppt er í. Þær sem unnu til verðlauna eru;Þórunn Jakobína 1 sæti trampólín, Guðlaug Margrét 2 sæti trampólín, Sigrún Ellen 3 sæti trampólín
Elva Björk 3 sæti stökk og 3 sæti dýna. Mikill áhugi er á fimleikum og að sögn Báru Baldvinsdóttur eru hátt á annað hundrað krakkar sem stunda fimleika hér, nemendur úr öllum skólunum. Yngstu nemendurnir eru þriggja ára og eru þau mjög áhugasöm.
Bára sagði að ferðin til Reykjavíkur hefði gengið alveg frábærlega vel í alla staði og þetta hefði verið óskaplega góður hópur. Í Reykjavík var gist í verkalýðsíbúð.
Fimleikakennarar eru þau Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Dóra Steinunn Jóhannsdóttir, Valdís og Hulda Sigurðardætur og Gísli Brynjarsson. Stefnt er á að hafa fimleikasýningu á Höfn fyrir jól.





Skrifa athugasemd