Unnið dag og nótt í síldinni á Hornafirði
Síldveiði fór rólega af stað fyrst í haust, en á annan mánuð er búin að vera stanslaus og full vinna hjá Skinney Þinganesi. Unnið er allan sólarhringinn og er síldin að mestu verkuð í frost þ.e. heilfryst og flökuð. Þetta er fljótvirkasta vinnslan og það sem við horfum á núna er að vinna þetta hratt og koma vörunni á markað segir Gunnar Ásgeirsson. Mest af frystu síldinni fer á Rússlandsmarkað. Búið er að taka á móti um 15 þúsund tonnum af síld og er vinnslugeta á sólarhring 3-330 tonn en takmarka hefur þurft veiði skipanna við vinnslugetu í landi. Stutt er fyrir Hornafjarðarskipin að fara á síldarmiðin sem hafa undanfarið verið á svæðinu frá Berufjarðarál í Lóndýpi. Gunnar segir að óvenjumikið sé af síldinni núna og að hún sé stór og falleg og hefur veiðst allan sólarhringinn.
Bræla var á miðunum í gær og allir Hornafjarðarbátar í höfn. Fiskveiði hefur verið frekar róleg vegna ógæfta og segir Gunnar að svo virðist sem minna sé um fisk á miðum út af Hornafirði en verið hefur á þessum árstíma undanfarin ár..





Skrifa athugasemd