Nóvember

17.11.2004 Nóvember

Rithöfundarkvöld í Pakkhúsinu

Annan desember munu nokkrir rithöfundar lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum í Pakkhúsinu á Höfn. Haukur Ingólfsson ætlar að lesa úr bók sinni ,,Niðurfall? sem eru ljóðmyndir, þættir af hinum dularfulla Manga. Helgi Björnsson jöklafræðingur kynnir bókina ,, Jöklaveröld, Náttúra og Mannlíf?, rannsóknir á 20.öld, sem Helgi er höfundur að ásamt þeim Agli Jónssyni og Sveini Runólfssyni. Þorvaldur Þorsteinsson les upp úr bók sinni ,,Blíðfinnur og Svörtu Tenglarnir; Lokaorustan?.
Sigfús Bjartmars les úr ljóðabók sinni ,,Andræði? sem er rammstuðlað og rímað magn mergjaðs heimsósóma. Kristín Ómarsdóttir er væntanleg með bók sína ,,Hér? saga um stúlkuna Billie í válegri veröld, og einnig er von á Auði Ólafsdóttur með,, Rigning í Nóvember? en fyrir þá bók hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.

Guðný Svavarsdóttir bókasafnsvörður segir að talsvert sé komið af nýju bókunum í bókasafnið og eru eftirsóttustu höfundarnir, Arnaldur Indriðason, Ólafur Jóhann og Einar Már. Útlánstími nýju bókanna er ein vika.
Starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar ásamt mökum ætla að bregða sér til London um helgina og kynna sér menninguna þar í borg.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica