Nóvember
Ræmurnar á Höfn
Ræmurnar á Höfn
Ræmurnar á Höfn fóru sína árlegu helgar-saumaferð, sem var bæði afslöppunar og vinnuferð

16.11.2004 Nóvember

Ræmurnar á Höfn fóru sína árlegu helgar-saumaferð

Næsta morgun var mætt í morgunmat kl.9.00 og því næst byrjað á ,,óvissuverkefni " sem varð að lokum taska. Klukkan 15.00 var hlé á saumaskapnum og farið í gönguferð um nágrennið og teljum við að við séum að verða búnar að kortleggja alla landareign þeirra Smyrlabjargarmanna eftir þessa helgi sagði Arna. Þegar komið var úr gönguferðinni beið Laufey eftir okkur með þetta fína kaffi og meðlæti og eftir að hafa gert því góð skil var saumað til kl. 19.30 en þá var skipt um föt og mætt í frábæran kvöldverð. Eftir að hafa slakað á til kl. 22.00 var aftur sest við saumavélarnar og sagði Arna að þær sem lengst voru að hefðu verið til kl.2.00.

Ákveðið var að sofa ,,út" og ekki mætt í morgunmat fyrr en kl.9.30 á sunnudagsmorguninn og að honum loknum setið við saumavélarnar til hádegis.
Eftir hádegi fóru konurnar að halda heim og þær síðustu fóru eftir miðdegiskaffið.
Arna sagði að afraksturinn um þessa helgi væri fullt af töskum, púðum,dúkum, jólasveinum,teppum og umfram allt alsælum konum sem eru ákveðnar í að koma aftur að ári og þær vilja senda Laufeyju á Smyrlabjörgum þakkir fyrir frábærar móttökur og mat, óendanlega þjónustulund og þolinmæði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica