Hornfirðingarnir Guðbrandur og Gunnar Páll unnu með yfirburðum
Föstudaginn 5. nóvember s.l. var spilaður landstvímenningur í bridge á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði og Hornafirði. Alls tóku 60 pör þátt í mótinu. Efstir á mótinu voru Hornfirðingarnir Guðbrandur Jóhannsson og Gunnar Páll Halldórsson og unnu með yfirburðum, fengu 68,83% skor, Reykvíkingar voru í 2. sæti með 59,98% sk. og Ísfirðingar í þriðja sæti með 59,81% sk. í níunda sæti voru Hornfirðingarnir Ólafur og Valdimar með 57,10% sk. og Ingvar og Gísli í 14. sæti með 55,63% sk. Mjög góð frammistaða hjá Hornfirðingunum. Guðbrandur segir að nokkur lægð hafi verið í bridge spilamennskunni hér undanfarið en þetta sé að breytast, nýir félagar eru að koma inn og að horft sé björtum augum til vetrarstarfsins.
Núna stendur yfir bikarkeppni Austurlands og eru Hornfirðingar komnir í 3.umf. eða undanúrslit. Tuttugu karlar eru Bridgefélagi Hornafjarðar og formaður þess er Þorsteinn Sigjónsson





Skrifa athugasemd