Nóvember
Miðbær
Miðbær
Miðbær, verslunar og þjónustumiðstöð við Litlubrú

12.11.2004 Nóvember

Hornfirðingar, stuðlum að blómlegri verslun í heimabyggð

Jólavörurnar streyma nú inn í verslanir hér á Hornafirði og eru margir farnir að huga að jólagjöfum og öðru sem til þarf fyrir jólin. Úrval er gott í verslunum hér og verð sambærilegt við verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Verslunareigendur hér eiga í vök að verjast vegna tíðra komu umferðasala frá verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Umferðasalar þessir senda dreifibréf í hvert hús um að þeir séu mættir á staðinn með mikið úrval af frábærum söluvarningi á einstaklega góðu verði, flott og ódýrt í jólapakkana. Svona einfalt er þetta reyndar ekki því í mörgum tilfellum eru þessar vörur dýrari en í verslunum á staðnum. Flestum hlýtur að finnast hallærislegt að fá bréf án undirskriftar eða upplýsinga um hver sé sendandinn en svo er um sum þessi auglýsingabréf sem detta inn um bréfalúguna með póstinum, þar er ekkert um hver að þessu stendur.

Við erum óhress með þessa umferðasölu en vonum að fólk gefi sér tíma til verð
samanburðar því sést hefur um helmings verðmunur á fatnaði, hvað samskonar flík í sama merki var ódýrari í verslun hér, sagði einn verslunareigandinn. Til þess að geta rekið verslun hér á staðnum, eigum við að sjálfsögðu allt undir því að verslað sé við okkur og geri okkur kleift að bjóða gott vöruval, sem við reynum að hafa á sambærilegu verði og það er í verslunum í Reykjavík, sagði annar verslunareigandi.
,,Hornfirðingar, stuðlum að blómlegri verslun í heimabyggð, það er hagur okkar allra?.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica