Opið hús hjá Landsbankanum á föstudag
Á föstudag munu starfsmenn Landsbankans á Höfn blása í lúðra og bjóða Hornfirðingum til kynningar á þjónustu bankans á opnu húsi í útibúi bankans við Hafnarbraut. Þar verður m.a. kynnt fyrirtækjaþjónusta bankans, nýungar í fasteignalánum, Launavernd og vefur Landsbankans sem hlaut þrenn verðlaun þegar Íslensku vefverðlaunin 2004 voru afhent í október. Að sögn Guðbjargar Garðarsdóttur þá er tilgangur með opnu húsi að gefa viðskiptavinum og starfsfólki bankans gott tækifæri til að hittast og skiptast á skoðunum og fara yfir helstu nýjungar sem í boði eru. Einnig munu verða aðrar uppákomur ásamt því að gestum verður boðið upp á léttar veitingar.
Þetta er nýjung hjá Landsbankanum í að kynna þjónustu sína. Útibú Landsbankans á Höfn var stofnað 1972 og hjá því starfa nú 12 starfsmenn. Útibússtjóri bankans er Jóna Ingólfsdóttir.




Skrifa athugasemd