Nóvember
Nýheimar
Nýheimar.

09.11.2004 Nóvember

Ný aðstaða fyrir nemendur í fjarnámi opnuð í Nýheimum

Í dag miðvikudag verður formleg opnun á aðstöðu í Nýheimum fyrir þá nemendur sem eru í fjarnámi á háskólastigi. Aðstaðan er í einni skrifstofu Frumkvöðlaseturs Austurlands og geta fjarnámsnemendur haft aðgang að tölvum, prenturum, faxi og ljósritunarvél ásamt því að geta nýtt sér fundarherbergi sem þar er. Einnig býðst nemendum aðgangur að bókasafninu og lesaðstöðu Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu. Að sögn Eyjólfs Guðmundssonar skólameistara FAS þá skipir það miklu máli að nemendur finni stuðning í fjarnáminu með því að hitta aðra þó svo að fólk sé í mismunandi námi. Eyjólfur segir að það vanti hér meira af námsráðgjöf á háskólastigi en það standi til bóta. Á Hornafirði eru 33 nemendur skráðir hjá Fræðsluneti Austurlands við ýmsa háskóla, svo sem Háskóla Íslands, Tækniháskólann, Háskólann á Hólum og Kennaraháskólann en þar eru flestir fjarnámsnemendurnir.

Formleg opnun á fer fram í Nýheimum kl.15:00. Búið að senda út boðsbréf til allra þeirra sem eru í fjarnámi og eru jafnframt allir velkomnir til að kynna sér aðstöðuna. Aðstaðan er undir regnhlíf Fræðslunets Austurlands og í samstarfi við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica