Nóvember
Félag eldriborgara
Félag eldriborgara (úr myndasafni)
Félag eldriborgara (úr myndasafni)

09.11.2004 Nóvember

Félagsstarf eldri borgara á miklum skriði

Að venju er félagsstarf Félags eldri borgara á Hornafirði komið á fullann skrið og af nógu að taka. Hver vika er þéttskipuð viðburðum og ættu flestir að finna þar eitthvað við sitt hæfi má þar nefna gönguferðir, bókband, snóker, boccia, handavinna, tekið er í spil, sundleikfimi og líkamsrækt. Þá er starfandi öflugur kór Gleðigjafar sem Guðlaug Hestnes stjórnar og var kórinn á sunnudaginn að syngja við allra heilagramessu í Hafnarkirkju. Á laugardaginn brá hópur úr félaginu sér til Djúpavogs til að leiðbeina eldri borgurum þar í boccía. Félagið hefur boðið upp á ýmis námskeið og er nú í gangi glerlistarnámskeið. Samverustund er á dagskrá annan hvern föstudag og þá koma góðir gestir í heimsókn sem fræða og skemmta. Á hverjum sunnudegi er spiluð félagsvist og næstkomandi sunnudag byrjar þriggja daga parakeppni og eru vegleg verðlaun í boði fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið.

Nú þegar jólin nálgast er byrjað að huga að jólahlaðborðinu og jólafagnaði félagsins sem verða í desember og eftir áramót kemur að þorrablótinu sívinsæla. Af þessari stuttu frétt má sjá að það þarf enginn eldri borgari á Hornafirði að setja auðum höndum, allir geta fundið sér eitthvað við hæfi. Það er um að gera að taka þátt í félagsstarfinu sem fer að langmestu leiti fram í félagsmiðstöð aldraðra Ekrunni við Víkurbraut. Núvernadi formaður félagsins er Örn Eriksen.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica