Nóvember
Fjölskyldudagar í Íþróttahúsinu
Fjölskyldudagar í Íþróttahúsinu
Fjölskyldudagar í Íþróttahúsinu

09.11.2004 Nóvember

Vel lukkaður fjölskyldudagur

Fjölskyldudagurinn sem haldinn var á Höfn sl. laugardag tókst með ágætum og það er mikil og almenn ánægja með þennan fyrsta formlega fjölskyldudag og greinilega mikill áhugi á að svona fjölskyldudagur verði haldinn árlega í byrjun vetrar. Mjög góð aðsókn var að þeim stöðum sem voru opnir og var aðgangur ókeypis. Í Nýheimum var sitt hvað til skemmtunar s.s. söngur, upplestur, nemendur tónskólans léku, sagðir brandarar og fl. Allir fengu pizzusneið, djús eða kaffi í boði sveitarfélagsins og eins fengu þeir sem voru að skemmta sér í íþróttahúsinu pizzusendingu og drykk úr Nýheimum. Litaboltafélagið var með aðstöðu í gámi við Sindrahúsið og þar gátu allir fengið að prufa þessa nýju tómstundaiðju. Tvær bíósýningar voru í Sindrabæ í boði Skinneyjar Þinganess og Félagsmiðstöðin með sínum tækjum og búnaði var öllum opin.

Sporthöllin bauð fjölskyldum frían aðgang að tækjunum frá kl. 10 ? 13 og sagði Svava Mjöll Jónasar að fullt hefði verið í salnum allan tímann og mikið fjör.
Margir lögðu leið sína í íþróttahúsið og léku sér þar bæði börn og foreldrar einnig tók íshokki-hópurinn einn leik.

Sýningin Handverk og Hönnun opnaði í Pakkhúsinu á laugardaginn og komu þangað 130 manns og góð aðsókn var einnig á sunnudaginn.Sýningin verður aftur um næstu helgi. Jöklasýningin var opin á fjölskyldudaginn og þangað komu rúmlega 50 manns og eftir lokun fengum við 100 manna hóp sagði Inga Jónsdóttir hjá Menningarmiðstöðinni. Hugmyndina að fjölskyldudeginum átti Elín Magnúsdóttir formaður bæjarráðs.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica