Margmiðlunardiskur í staðinn fyrir handbækur
Á síðustu ferðakaupstefnu Vest Norden með þátttakendum frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum var ákveðið að gefa út margmiðlunardisk, í staðinn fyrir handbækur með þjónustuskrám og kynningu á afþreyingu og framboði á gistingu á hér á okkar svæði, segir Guðrún Ingimundardóttir formaður Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu.
Undanfarin ár hefur verið prentuð ein bók fyrir hverja Vest Norden ferðakaupstefnu sem er bæði dýrt og tímafrekt og einnig er líka dýrt að dreifa henni til þeirra sem hafa áhuga á efni frá okkur, þetta eru þungar sendingar og óhentugar. Því fórum við að skoða hvort við gætum ekki gert þetta á einfaldari hátt án þess að slaka á gæðunum og í framhaldi af því var ákveðið að gera þennan margmiðlunardisk sem er agnarlítill, mikið minni en venjulegur geisladiskur og passar í tölvurnar.
Á diskinum er myndbandið Austurland sem gert var fyrir nokkrum árum, aðeins styttra á diskinum. Langmestur hluti myndbandsins þ.e. það sem er á diskinum er af svæðinu hér hjá okkur segir Guðrún. Á diskinum koma einnig fram þjónustulistar, afþreying á svæðinu , söfn, símanúmer og netföng.
Á diskinum er Austurlandi skipt í suður og austursvæði og er suðursvæðið Austur-Skaftafellssýsla.
Þessi diskur er til sölu á bókasafninu í Nýheimum og kostar 300 kr. Guðrún vill benda þeim sem áhuga hafa á að kynna svæðið hér, og eitthvað af því ótalmarga sem sýslan okkar hefur uppá að bjóða, að tilvalið er að stinga ferðadiskinum með í jólakortið til vina og vandamanna hvar sem er í heiminum.





Skrifa athugasemd