Nóvember
Börn í Nesjaskóla fá endurskinsborða
Börn í Nesjaskóla fá endurskinsborða
Ingibjörg Ragnarsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir slysavarnarkonur við afhendingu á endurskinsborðum í Nesjaskóla.
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

05.11.2004 Nóvember

Sex ára börn í Nesjaskóla fá endurskinsborða

Slysavarnadeildin Framtíðin færði í morgun sex ára börnum í Nesjaskóla endurskinsborða. Það voru þær Ingibjörg Ragnarsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir sem afhentu börnunum borðana og sýndu þeim hvernig ætti að setja þá á sig. Löggan, Jón Garðar Bjarnason kom og ræddi við krakkana um hvernig ætti að haga sér í umferðinni og reglur um það rifjaðar upp. Síðan spurði hann um hvort þau settu ekki alltaf bílbeltið á sig þegar þau færu í bíl og eins hvort þau vildu ekki líka passa uppá að mamma þeirra og pabbi spenntu beltin áður ekið væri af stað. Þau voru alveg með það á hreinu að þau ætluðu alltaf að vera með beltin spennt í bílnum en eitt barnanna kallaði upp ,,mamma mín notar ekki bílbeltið nærri því alltaf?. Þetta sama barn ætlar að passa upp á að mamman fari eftir reglunum og noti bílbeltið.

Vonandi þarf þetta barn ekki að gefa þessa yfirlýsingu oftar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica