Nóvember
Dægradvöl_Ingibjörg og Bylgja
Dægradvöl_Ingibjörg og Bylgja
Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur og Bylgja Kristjánsdóttir umsjónarmaður með Dægradvölinni á Skjólgarði
Mynd 2 af 5
1 2 3 4 5

05.11.2004 Nóvember

Margt gert til gamans og afþreyingar á Dægradvöl Skjólgarðs

Dægradvöl er starfrækt á Skjólgarði fjóra virka daga vikunnar frá kl. 13.30-16.00 fyrir eldri borgara, bæði heimafólk á Skjólgarði og utan þess. Ýmiskonar afþreying er þar í boði svo sem að spila á spil, upplestur, horfa á myndbönd, söngur og að sjálfsögðu handverk eftir getu og áhuga hvers og eins. Bingó er einnig á dagskránni og bókband ef þátttaka er næg. Ýmislegt fleira er þar til gamans gert og svo er síðdegiskaffi í lok vinnudagsins. Þátttakendur utan heimilisins greiða kr. 200 fyrir daginn og er þar innifalið síðdegiskaffi akstur o.fl. Það koma núna 16 manns til okkar utan þeirra sem búa hér á Skjólgarði segir Bylgja Kristjánsdóttir sem sér um Dægradvölina.Við förum einu sinni í viku í Ekruna og vinnum og skemmtum okkur með eldri borgurunum sem þar eru. Þegar 30 ára afmælis dvalarheimilisins var minnst um sl. helgi var sýning á þeim fjölbreyttu og fallegu munum sem unnir eru á Skjólgarði.

Dægradvölin er í kjallaranum á Skjólgarði þar sem áður var fæðingaraðstaðan og sagði Bylgja að þó herbergin séu ekki stór nýttist plássið vel fyrir þessa starfsemi.

Það er auðséð að sumar konurnar í Dægradvölinni eru farnar að huga að jólagjöfunum og þar er prjónað, saumað og perlað. Ásta Oddbergsdóttir er snillingur að búa til ýmsa hluti úr grænlenskum perlum og hún á ekki í neinum vandræðum að handleika þessar örsmáu perlur þó orðin sé 89 ára.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica