Nóvember
Framkvæmdir við Hafnarbrautina
Framkvæmdir við Hafnarbrautina
Helgi Már bæjarverkfræðingur, Magnús og Bjartmar í Blómalandi við Hafnarbrautina
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

04.11.2004 Nóvember

Framkvæmdir við Hafnarbrautina

Bæjarráð samþykkti fyrr á þessu ári að fara í gang með að gera breytingar á yfirbragði Hafnargötunnar allt frá gatnamótum Víkurbrautar að gatnamórum Svalbarðs. Breytingarnar felast m.a. í því að gatan verður mjókkuð og hellulögð auk þess sem hugmyndir hafa verið unnar af nánasta nágrenni hennar, en Ulla R Pederse landslagsarkitekt hefur gert tillögur að umhverfinu og síðan er þetta unnið áfram hjá tæknideild sveitarfélagsins. Hugmyndin kviknaði út frá frétt frá Keflavík (Reykjanesbæ) en þar hefur verið unnið að því að endurgera Hafnarbrautina og gamla bæinn á glæsilegan hátt á síðustu árum, en Hafnarbrautin þar var landsþekkt fyrir óglæsileika frama af. Blómaland er nú að byrja vinnu við fyrsta áfangann, en þeir skiluðu lægstu verðum í verkið á sínum tíma. Byrjað verður við gangbrautina milli Sýsluskrifstofuna og gamla Shell og hellulagt í áttina að Litlubrú. Einnig verður gatan hækkuð á þessu svæði þannig að ekki myndist þarna stór pollur eins og stundum áður fyrir framan Sparisjóðinn.

Á næsta ári er síðan fyrirhugað að fara í malbiksframkvæmdir á götunni í tengslum við að vegurinn í gegnum Almannaskarðsgöngin verður malbikaður. Það verk mun verða í höndum Malarvinnslunnar á Egilsstöðum. Ljóst er að einhver óþægindi munu verða af framkvæmdinni, en reynt verður að halda þeim í lágmarki með því að áfangaskipta verkinu og eru vegfarendur hvattir til að sína aðgæslu á svæðinu á meðan að vinna fer fram.


Á næstu dögum verða síðan opnuð tilboð í vinnu við gerð frárennslislagnar á vesturströnd Hafnar og frágang á þekju við Krosseyjarþil. Nánar um það síðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica