Nóvember
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Tilbúin í slaginn, meðlimir lúðrasveitar Tónskóla-A-Skaft @Tónskóli A-Skaft
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

03.11.2004 Nóvember

Lúðrasveit Tónskólans tekur þátt í landsmóti

Landsmót hjá samtökum skólalúðrasveita verður haldið í Grafarvogi nk.laugardag og sækja það 26 skóla-lúðrasveitir víða að af landinu og alls taka 700 börn og unglingar þátt í mótinu. Lúðrasveit Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu tekur þátt í mótinu en hún er skipuð 27 krökkum úr 6.?9. bekk ásamt einum úr 10.bekk. Landsmótið er nú haldið árlega og var í fyrrasumar á Akureyri þar sem Hornfirska sveitin mætti til leiks. ,, Það er mikill áhugi hjá krökkunum og við erum búin að vera að undirbúa þetta alveg frá því sl.vetur þegar ákveðið var að taka þátt í mótinu?, segir Jóhann Moravek skólastjóri Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Lúðrasveitirnar verða tónleika í íþróttahúsinu við Dalhús í Grafarvogi frá kl. 10.00 á laugardaginn til kl.18.00 með smá hléum. Á sunnudaginn kl. 13.30 til 15.30 spilar Lúðrasveit Æskunnar og á eftir henni spila allar lúðrasveitirnar bæði í tveim hópum og svo í einu þar sem 700 manns spila saman.

Í tengslum við lúðrasveitarstarfið hafa samtökin verið með lúðrasveit æskunnar þar sem eru teknir inn nemendur á skóla aldri sem búnir eru með ákveðna áfanga í tónlist og þá eiga þau kost á að taka inntökupróf í þessa lúðrasveit sem er úrvalssveit. Jóhann segir að þetta hafi lengi verið í tengslum við landsmótið og þessi sveit hefur þá verið á æfingum, alltaf með sinn hvern stjórnanda sem keyptir hafa verið til þess, ýmist innlendir eða erlendir einnig eru þetta líka námskeið í leiðinni. Þessi námskeið eru búin að vera núna um tvær helgar og eru sex krakkar þátttakendur héðan frá Höfn. Krakkarnir voru með tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur um sl. helgi og gekk það allt mjög vel segir Jóhann, síðan verða aftur tónleikar með hluta af því prófgrammi sem verður á landsmótinu hjá Lúðrasveit æskunnar.

Um næstu helgi munu nemendur úr tónskólanum spila í Nýheimum á degi fjölskyldunnar. Það er enginn verkefnaskortur hjá krökkum því framundan hjá fjölda nemenda skólans er að taka samræmd próf í tónlist þ.e.grunnpróf og miðpróf og síðan styttist í jólatónleikana. Í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu eru 114 nemendur í einkatímum og 70 börn í forskólanum. Kennarar eru 10. Um 20 börn eru á biðlista eftir plássi í tónskólann.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica