Nóvember
Eldgos í Grímsvötnum
Eldgos í Grímsvötnum
Séð frá Hofsnesi (Ísak Einarsson í forgrunni á Fátækramannahól) @Einar Rúnar Sigurðsson
Mynd 1 af 3
1 2 3

02.11.2004 Nóvember

Áin tvöfaldast sem vanalega gerist á 55 tímum

Skeiðará hefur vaxið hratt síðan í gær og segir Snorri Zophoníasson hjá Orkustofnun að á átján klst. í gær hafi áin tvöfaldast sem vanalega gerist á 55 tímum. Ekki eru komnar niðurstöður úr mælingu í dag. Rennsli er orðið undir allri brúnni en langt er í að nokkur hætta sé á að brúin geti skemmst. Snorri á von á að vöxtur í ánni haldi áfram í dag og það sé í fyrstalagi í kvöld að hætti að vaxa og fari að minnka. Snorri sagði að búið væri að reikna út að vatnið sem tilheyrði hlaupinu sjálfu yrði búið að ná hámarki í dag eða nótt en nú er eldgos og fyrir bragðið mun halda áfram að vaxa lengur. Tíminn er kominn sem tekur vatnið að koma ofan úr Grímsvötnum en hvort þetta er vatn sem er nýbráðnað skal ég ekki segja um. Rennsli í Skeiðará er núna um 2000 tonn á sek.

Snorri segir að hið besta veður sé í Öræfunum en skýjahula yfir jöklinum svo ekki sést til gossins. Mælingar á ánni eru gerðar á og við Skeiðarárbrú og fylgjast starfsmenn Orkustofnunar grannt með hlaupinu. Lítil umferð hefur verið um brúna í dag. Starfsmenn Landsvirkjunar eru komnir að Skeiðará og fylgjast með raflínum á aurunum fyrir neðan og eru í hættu með vaxandi flóði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica