Fjölskyldudagur laugardaginn 6. nóvember
Á fundi bæjarráðs þann 27. október var samþykkt eftirfarandi tillaga Elínar Magnúsdóttur: ?Vegna þeirrar óvenjulegu stöðu sem nú er uppi í samfélaginu hjá fjölskyldufólki og vegna þeirrar ábyrgðar sem kjörnir sveitarstjórnarmenn bera gagnvart íbúum sveitarfélagsins, legg ég undirrituð til að Sveitarfélagið Hornafjörður standi fyrir sérstökum fjölskyldudegi laugardaginn 6. nóvember nk. í samstarfi við Sindra og æskulýðs- og tómstundaráð.? Undirbúningur er í fullum gangi og liggur dagskrá fyrir. Margt verður hægt að gera sér til gamans, svo sem að fara í sundlaugina, Sporthöllina, Nýheima, prófa litbolta og hjólaskauta, fara í íþróttahúsið á Höfn, félagsmiðstöðina, bókasafnið, jöklasýningu, Pakkhúsið og Sindrabíó.
Fyllsta ástæða er til að hvetja alla íbúa sveitarfélagsins til að vera virkir þátttakendur í uppákomum þennan fjölskyldudag. Sjá auglýsingar í Eystrahorni og á Skjávarpi.





Skrifa athugasemd