Annað hvort elskar Ísland mig eða Noregur hatar mig, ég kemst ekki heim.
Erlendir ferðamenn geta lent í ýmsu á ferðalögum sínum um Ísland og jafnvel að allt gangi öfugt við það sem áformað er. Norðmaðurinn Andres Wang fékk að kynnast þessu og hann kynntist einnig íslenskri gestrisni og hjálpsemi sem varð til þess að Íslandsferðin varð ævintýri en ekki martröð. Ætlunin var að sigla til frá Noregi til Færeyja á bátnum sem pabbi hans smíðaði en vegna slyss sem hann lenti í varð hann að fresta þeirri ferð. Hann heitir Andres Wang og er 37 ára gamall sjúkrabílstjóri frá Kongsberg í Noregi. Fyrir 10-15 árum heyrði hann um ferð Norrænu og vissi að hún kæmi við í Færeyjum á leið sinni til Íslands, Mótorhjólið var í lagi, tjaldið og svefnpokinn klárt, hann tilbúinn í að fara í ferðalag þó svo hann gæti ekki farið á bát föður síns til Færeyja þá gæti hann farið með Norrænu. Andres byrjaði að hringja í ferðaskrifstofur til að grafast fyrir um hvernig hægt væri að komast með skipinu og nokkrum dögum síðar nánar tiltekið 11.september s.l. var hann lagður af stað fá Bergen í Noregi áleiðis til Íslands.
Eftir viku stopp í Færeyjum var ferðinni haldið áfram til Íslands þar sem hann ætlaði að ferðast um landið og ná Norrænu til baka viku síðar.
Þessi vika varð að 5 vikum og á því tímabili hafði hann kynnst öllum tegundum af veðri á Íslandi, fengið blóðeitrun og þurft að leita læknis á Akureyri, Norræna hafði tvisvar frestað komu sinni til landsins vegna veðurs, mótorhjólið bilað, sandstormur komið í veg fyrir að hann gæti keyrt á mótorhjólinu frá Skaftafelli til Hafnar og því þurfti hann að nota síðustu aurana sem hann hafði til að greiða fyrir rútuferðina til Hafnar. Hann fór úr rútunni á áfangastað hennar sem var á Hótel Höfn, ,, ég settist niður á stéttina fyrir framan Hótelið svangur, auralaus og sá ekki með nokkrum hætti hvernig ég gæti reddað mér áfram, það má segja að ég hafi verið staddur í helvíti þar til Gísli Már á Hótelinu kom út og spurði mig hvað væri að?, sagði Andres þegar fréttamaður vefsins hitti hann á Hótelinu í vikunni.
Gísli Már segir að eftir að hann heyrði sögu Andrésar kom ekki neitt annað til greina en að bjóða manninum inn á hótelið þar sem við leystum úr vandræðum hans.
Uppáhaldsstaður Andrésar er Svalbarði en eftir dvöl hans á Íslandi þá finnst honum hann vera að halda framhjá þar sem hann er farinn að elska hér land og þjóð. Aðspurður hvort hann ætli að koma hingað aftur þá sagði hann að það væri ekki spurning og það mjög fljótlega.
Eftir 5 daga dvöl á Hótel Höfn hélt Andrés til Seyðisfjarðar þaðan sem hann fór með Norrænu sl. fimmtudag.




Skrifa athugasemd