Nóvember
30 ára afmæli Dvalarheimilis Skjólgarðs
30 ára afmæli Dvalarheimilis Skjólgarðs
Guðlaugur Gunnarsson með móður sinni Sólveigu sem er elsti vistmaðurinn á Skjólgarði 107 ára.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

01.11.2004 Nóvember

30 ára afmælisins minnst með afmælisveislu á hjúkrunarheimilinu

Hjúkrunar og dvalarheimilið Skjólgarður á Höfn var formlega tekið í notkun 8.nóvember 1974 og var þrjátíu ára afmælisins minnst með afmælisveislu á hjúkrunarheimilinu sl. föstudag. Með stofnun Skjólgarðs gjörbreyttist aðstaða aldraðra og sjúkra í sýslunni, þeirra sem þurftu á umönnun og hjúkrun að halda, einnig var fæðingarheimilið flutt í Skjólgarð. Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar sagði að byrjað hefði verið í tveim viðlagasjóðshúsum við Hvannabrautina með tengibyggingu á milli þeirra, og seinna voru keypt tvö viðlagasjóðahús til viðbótar. Það tók ekki langan tíma að fylla hvert rými á Skjólgarði og þegar fjölmennast var þar voru dvalargestir 22 aldraðir vistmenn og 25 sjúklingar. Þá var fermetrafjöldi á vistmann 20 fermetrar og þrengslin óskaplega mikil. Nú eru á Skjólgarði og hjúkrunardeildinni 14 rúmgóð þjónusturými, 22 hjúkrunarrými og 4 bráðarými. Halldóra sagði að skýringin á þessari fækkun vistmanna væri sú að heimaþjónusta hefur stóraukist og áhersla lögð á að gera fólki kleift að geta verið á sínu heimili sem lengst.

Breytingin frá því fyrir 30 árum er stórkostleg, áður áttu þeir sem orðnir voru aldraðir og lasburða ekki um annað að velja en dvelja í heimahúsi ef þeir voru svo lánsamir að eiga aðstandendur sem gátu hugsað um þá. Þeir sem ekki nutu þess urðu að fara af staðnum og dveljast á hjúkrunar og dvalarheimilum fjarri sinni heimabyggð síðustu æviárin og hefur það án efa verið mörgum erfitt. Núna njóta vistmenn og sjúklingar á Skjólgarði frábærrar umönnunar starfsfólks og hjúkrunarfólks í björtu og heimilislegu umhverfi.

Halldóra sagði að Kvenfélagasamband Austur Skaftafellssýslu og kvenfélagið Tíbrá á Höfn hafi átt stóran þátt í að þessi stofnun komst á laggirnar með þeirra mikla framlagi og Skjólgarður hefur verið svo lánsamur að eiga marga velunnara sem lagt hafa honum lið og fjármuni. Í tilefni afmælisins færði kvenfélagið Tíbrá Skjólgarði lyftara og fylgihluti, en það er hjálpartæki fyrir þá sem eiga erfitt með að hreifa sig.

Fyrsta rekstrardeild Skjólgarðs var skipuð þeim Friðjóni Guðröðarsyni, Gísla Björnssyni,
Margréti Gísladóttur, Kjartani Árnasyni og Sigrúnu Hermannsdóttur.
Allar hjúkrunarstofnanir á Höfn eru núna starfræktar sameiginlega undir nafninu Heilbrigðisstofnun Suðausturlands sem starfar samkvæmt þjónustusamningi sem Sveitarfélagið Hornafjörður gerði við Fjármálaráðuneytið og Heilbrigðis og Tryggingamálaráðaneytið. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunnar er Inga Jóna Halldórsdóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica