Nóvember

Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu

Lúðrasveit Hornafjarðar sýnilegri á afmælisárinu. - 01.12.2004 Nóvember

Lúðrasveit Hornafjarðar verður 30 ára á næsta ári og verður afmælisins minnst með ýmsu móti og veglegri afmælishátíð. Fyrirhugað er að lúðrasveitin verði fyrirferðarmeiri í samfélagi okkar á afmælisárinu með tónleikum og ýmsum viðburðum. Ætlunin er að bjóða Lúðrasveit Vestmannaeyja hingað í febrúar og einnig er fyrirhugað að fá stærri nöfn úr tónlistargeiranum sem einleikara með hljómsveitinni á afmælistónleikum hennar segir Jóhann Morávek stjórnandi lúðrasveitarinnar. Allt kostar þetta okkur peninga, segir Jóhann, en lúðrasveitin hefur verið rekin með styrkjum frá sveitarfélaginu og menningarsjóði A-Skaft, þá hafa fáein fyrirtæki styrkt lúðrasveitina í tengslum við Sumar-Humar tónleikana og einnig hefur lúðrasveitin komið fram þar fyrir utan og þegið greiðslu fyrir. Þessi fjármögnun hefur rétt rúmlega staðið undir rekstrarkostnaði sveitarinnar. Lesa meira
 
Álfar og hyski á ferð í skóginum í Haukafelli

Búið er að merkja þau tré sem í boði verða - 30.11.2004 Nóvember

Jólatré verða til sölu í skógræktinni í Haukafelli og við ætlum að hafa sama hátt á og var fyrir jólin í fyrra segir Rannveig Einarsdóttir. Búið er að merkja þau tré sem í boði verða þetta árið. Ég reikna með að við verðum með söluna í Haukafelli opna 12. des. og þá getur fólk komið, valið sér jólatré og fellt það. Þarna verða tré af öllum stærðum allt frá pínulitlum upp í 3-4 metra há tré. Ef ekkert af þessum merktu trjám hentar er hægt að hafa samband við okkur og við skoðum hvort hægt er að finna eitthvað annars staðar. Það var góð jólastemning í Haukafelli í fyrra þegar fólk kom að ná sér í tré, þetta er alveg ný upplifun fyrir börnin og gömlu góðu ævintýrin um Grýlu, Leppalúða og jólasveinana lifna við þarna í nálægð fjalla og jökla. Lesa meira
 
Jólatrén skarta sínu fegursta

Jólatrjáasalan byrjar 10 dögum fyrir jól - 29.11.2004 Nóvember

Kiwanisklúbburinn Ós situr einn að sölu jólatrjáa á Höfn fyrir þessi jól fyrir utan að Skóræktarfélag A-Skaft verður með einn söludag í Haukafelli eins og á síðasta ári. Samningur náðist milli Kiwanis og verslunarinnar Krónunnar um að Krónan yrði ekki með jólatréssölu á Höfn eins og fyrir síðustu jól. ,,Þetta var allt gert í guðsfriði og góðri samvinnu milli Kiwanis og Krónunnar”, sagði Stefán Brandur Jónsson Kiwanismaður. Eins og kunnugt er fer allur ágóði sem Kiwanisklúbburinn fær af sölu jólatrjánna til góðgerðarmála. Sala byrjar um 10 dögum fyrir jól og á Stefán von á að sölugámurinn verði á miðbæjarsvæðinu.Úrval jólatrjánna verður líkt og verið hefur undanfarin ár. Reynt verður að fá þau tré sem sett verða upp við fyrirtæki og stofnanir frá skógræktarsvæðum í sýslunni. Lesa meira
 
Jóúlahúsið hans Ödda Þorbjörns (Mynd EBE_3)

Samkeppni um flottasta jólahúsið á Höfn - 28.11.2004 Nóvember

Það eru ófáir í sveitarfélaginu sem dunda við að skreyta húsin sín fyrir jólin með alls konar seríum, ljósaormum, stjörnum, álfum og ýmsu öðru sem gerir þau jólaleg. Eins og fram kom hér á vefnum þá er búist við að aukning verði á skreytingum í ár og margir nýir munu bætast við í hóp þeirra sem skreyta húsið sitt. Gísli Reynisson sem býr á Silfurbraut 31, en það hús var eitt fyrsta húsið á Höfn sem skreytt var og vakti mikla athygli, hefur skorað á Hornafjörð.is að standa fyrir samkeppni um best skreytta húsið í bænum og höfum við ákveðið að taka þeirri áskorun enda hugmyndin mjög góð. Samkeppnin verður með þeim hætti að þátttakendur munu skrá sig hjá okkur, við munum birta myndir af húsunum hér á vefnum og á SkjáVarpi. Lesa meira
 
Krakkablak

Blakdeild Sindra fær þjálfara í heimsókn - 26.11.2004 Nóvember

Í tilefni 70 ára afmælis UMF. Sindra 1. des nk. fær blakdeildin þá Jón Ólaf Valdimarsson og Subaru Takenaka þjálfara í heimsókn. Þeir munu vera með æfingabúðir fyrir blakiðkendur, bæði þá sem eru að æfa krakkablak og fullorðna. Jón og Subaru munu einnig heimsækja Hafnar- og Heppuskóla og vera með kynningu á blakíþróttinni fyrir nemendur skólanna. Stjórn blakdeildar vonar að blakiðkendur taki vel á móti þessum frábæru þjálfurum og fjölmenni á æfingarnar. Lesa meira
 
Jólin nálgast

Trúlega verður ljósametið frá í fyrra slegið - 26.11.2004 Nóvember

Jólaljósaskreytingum á Höfn fjölgar ört þessa dagana og eru fyrirtæki sem óðast að komast í jólabúninginn. Ljósaseríum í gluggum húsa fjölgar dag frá degi og er fólk heldur fyrr með þær en áður. Jólaljósin stytta mörgum skammdegið og léttir þeim sem haldnir eru skammdegiskvíða. Ekki eru nema ca 20-25 ár síðan að varla sást jólasería í glugga fyrr en eftir miðjan desember og um leið og jól og áramót voru liðin hurfu jólaljósin, flestir höfðu þau þó fram á þrettándann. Verslanir voru aðeins fyrr með sínar skreytingar, algengt að þar væri skreytt um 10. des. Skreytingar í fyrra ,um alla sýsluna, voru mjög fallegar, meiri en nokkru sinni áður, fallegar og vandaðar uppsetningar. Trúlega verður ljósametið frá í fyrra slegið um þessi jól því bæði eru fleiri tegundir ljósaskreytinga á markaðnum og á betra verði. Lesa meira
 
Vegurinn fyrir Krosshraunsklett

Ætlunin er að leggja nýjan vegarkafla um 1.4 km - 25.11.2004 Nóvember

Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar í morgun lá fyrir beiðni um framkvæmdaleyfi við vegarstæði við Dynjanda í Nesjum. Ætlunin er að leggja nýjan vegarkafla um 1.4 km langan sem yrði framlenging á endurbyggingu vegarins að Almannaskarði. Mikil bót verður að þessari framkvæmd því blindbeyjan niður fyrir Krosshraunsklettinn verður löguð og einnig beyjan við heimreiðina að Dynjanda. Á fundi bæjarráðs lá einnig fyrir bréf frá Skipulagsstofnun þar sem óskað var eftir áliti hvort framkvæmdin væri háð umhverfismati. Eftirfarandi var bókað á fundi bæjarráðs: |nl|Bæjarráð telur að ekki sé ástæða til mats á umhverfisáhrifum þar sem framkvæmdin hafi ekki umtalsverð umhverfisáhrif hvorki vegna eðlis né umfangs hennar. Þó telur bæjarráð rétt að bíða umsagnar annarra aðila um hvort framkvæmdin sé háð umhverfismati áður en framkvæmdaleyfi er veitt, sbr. bréf skipulagsstofnunar Lesa meira
 
Félagsmiðstöðin Þrykkjan

Þrykkjufréttir komu út í gær - 24.11.2004 Nóvember

Það er í ýmsu að snúast hjá unglingunum í Þrykkjunni þessa dagana. Í gær komu Þrykkjufréttir út en útgáfa þeirra hefur legið niðri um tíma. Í blaðinu er að finna viðtöl, brandara, frásagnir af Þrykkjustarfi, getraun ofl. skemmtilegt. Blaðið er allt í lit og prentað hjá Galdri ehf. Það er fjölmiðlaklúbburinn sem gefur blaðið út og fá unglingar fyrsta blaðið gefins í Þrykkjunni í kvöld á förðunardiskóinu. Þá hefur lið frá Þrykkjunni tekið þátt í spurningakeppni Samfés, Viskunni undanfarið og staðið sig mjög vel komust í átta liða úrslit en luku keppni í gær eftir snarpa viðureign við lið félagsmiðstöðvarinnar Igló í Kópavogi. Lesa meira
 
Frá borgarafundinum í Ekru

Fjárhagsáætlun fyrir 2005 komin - 23.11.2004 Nóvember

Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2005 var birt á bæjarstjórnarfundi sl. fimmtudag. Um kvöldið var haldinn borgarafundur í Ekru svo menn fengju tækifæri til að ræða um fjárhagsáætlunina og leggja spurningar fyrir bæjarstjórnarmenn. Allflestir fundargestir voru kennarar og snerust umræður fundarins um málefni kennara. Þetta voru góðar umræður og menn spjölluðu saman um þessi mál sagði Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar, en það var enginn áhugi fyrir umræðum um nýgerða fjárhagsáætlun. Halldóra segir að í fjárhagsáætluninni sé ákveðið að útsvar verði áfram í hámarki, fasteignagjöld verða óbreytt en lóðaleigugjald sem hefur verið ein króna á ferm. og verið óbreytt frá um 1998, verður hækkað og verður gjaldið 1 % af lóðarmati. Eftir er að ákveða hvað varðar allar framkvæmdir og hvað við gerum næsta sumar segir Halldóra, en það er mikill vilji fyrir því að fegra og prýða bænum. Næsta sumar kemur malbikunarvél á staðinn þar sem lagt verður með heitu malbiki til í Almannaskarðsgöngunum. Lesa meira
 
Krosseyjarbryggja

Opnuð tilboð í þekju og lagnir á Krosseyjarbryggju ásamt sniðræsi fyrir fráveituna - 22.11.2004 Nóvember

Tvö tilboð bárust í útboði á þekju og lögnum á Krosseyjarbryggju í Hornafjarðarhöfn. Tilboð frá Sveini Sighvatssyni var upp á kr.39.797.374, sem er 86.1 % af kostnaðaráætlun og tilboð frá G. Þorsteinssyni kr.49.989.550, en það er 108.1 % af kostnaðaráætlun. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að búið sé að fara yfir þessi tilboð sem bárust og verið sé að fara yfir tilboð lægstbjóðanda og hvernig hann muni standa að því með verktökum og undirverktökum. Málið verður væntanlega tekið fyrir í hafnarnefnd á miðvikudagskvöld n.k. Siglingastofnun hefur lagt til að gengið verði til samninga við Svein Sighvatsson. Hafnarstjórn mun svo taka endanlega ákvörðun um töku tilboðs. Lesa meira
 
Fimleikaflokkurinn sem fór á Islandsmótið.

Fimleikadeild Sindra tók þátt í Íslandsmóti í fimleikum - 22.11.2004 Nóvember

Um helgina fóru 10 stúlkur úr Fimleikadeild Sindra til Reykjavíkur og tóku þátt í keppni á Íslandsmóti í fimleikum, 1 þrep. Stúlkurnar sem eru á aldrinum 10-15 ára, stóðu sig mjög vel og voru allar með í kringum 30 stig. Til að færast upp um þrep þarf 32 stig og það tókst þeim Önnu Mekkín Reynisdóttir og Þyrí Imsland. Að auki fengu fjórar stúlkur verðlaun, en það eru veitt 1-3 verðlaun fyrir hverja grein af þeim 4 greinum sem keppt er í. Þær sem unnu til verðlauna eru;Þórunn Jakobína 1 sæti trampólín, Guðlaug Margrét 2 sæti trampólín, Sigrún Ellen 3 sæti trampólín |nl|Elva Björk 3 sæti stökk og 3 sæti dýna. Mikill áhugi er á fimleikum og að sögn Báru Baldvinsdóttur eru hátt á annað hundrað krakkar sem stunda fimleika hér, nemendur úr öllum skólunum. Yngstu nemendurnir eru þriggja ára og eru þau mjög áhugasöm. Lesa meira
 
Ráðhús Hafnar

Bókun bæjarstjórnar vegna kjaradeilu - 19.11.2004 Nóvember

Á fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar í gær var samþykkt og bókuð eftirfarandi yfirlýsing: Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir ánægju með að undirritaðir hafi verið samningur í kjaradeilu Kennarasambands Íslands og sveitarfélaganna. Bæjarstjórn hvetur alla aðila að samþykkja samninginn og taka höndum saman um að ljúka þessu skólaári með velferð nemenda að leiðarljósi og sjá til þess að afleiðingar kjaradeilunnar bitni sem minnst á þeim. |nl|Jafnframt lýsir bæjarstjórn yfir ánægju með framkomu kennara við grunnskóla sveitarfélagins en þeir hafa ekki raskað starfsemi skólanna í þessari viðkvæmu deilu eftir að lagasetning var samþykkt á alþingi. Lesa meira
 
Selur rétt við bryggjuna

Mikið af sel í firðinum - 19.11.2004 Nóvember

Mikið er af sel inni í Hornafirði núna og sumir koma inn á höfnina alveg inn að bryggjum, eru hinir rólegustu og kíkja á umferðina enda afskaplega forvitnar skepnur. Karl Sigurðsson (Kalli á Móhól), sem er manna fróðastur um lífríki í firðinum, segir að fullt sé af sel inni í firðinum og þar liggi þeir á sandeyrunum. Í byrjun vikunnar voru taldir þar 70-80 selir. Kalli segir að fyrir ca. 25 árum hafi verið lítið um sel innan fjarðar og þeir lágu ekki hér inni nema nokkrir sem héldu sig við Álftasker, sem er austan við Þinganes, þar kæptu nokkrir selir hér áður fyrr. Svona selavöður eins og eru nánast alltaf núna sáust ekki hér áður fyrr. Kalli segir að greinilega hafi breyst eitthvað mikið í lífríkinu því að t.d. er allur selur að heita má horfinn frá Stokksnesi, þar sem þeir lágu alltaf uppi hér áður fyrr. Lesa meira
 
Þjónustumiðstöðin í Skaftafelli

Úthlutun styrks til NEST - 18.11.2004 Nóvember

Innan Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins hefur verið samþykkt að styrkja verkefnið |nl|NEST (Northern Environment for Sustainable Tourism; potential of national parks and protected areas for rural development in the northern periphery) sem Háskólasetrið á Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur og Þróunarstofa Austurlands eru aðilar að. NEST er fjölþjóðlegt samvinnuverkefni á milli Íslands, Finnlands, Svíþjóðar og Skotlands til þriggja ára. Heildarkostnaður við verkefnið er um 90 milljónir króna og íslenska þátttakan í verkefninu er 12 % af heildarkostnaði verkefnisins. Styrkveiting til íslenska hlutans er um sjö milljónir króna. Einnig greiða erlendu samstarfsaðilarnir fyrir stjórnun samstarfsverkefnisins sem er í umsjá Háskólasetursins á Hornafirði, en starf verkefnastjóra verður auglýst fljótlega. Lesa meira
 
Höfnin í gullfallegri birtu

Unnið dag og nótt í síldinni á Hornafirði - 18.11.2004 Nóvember

Síldveiði fór rólega af stað fyrst í haust, en á annan mánuð er búin að vera stanslaus og full vinna hjá Skinney Þinganesi. Unnið er allan sólarhringinn og er síldin að mestu verkuð í frost þ.e. heilfryst og flökuð. Þetta er fljótvirkasta vinnslan og það sem við horfum á núna er að vinna þetta hratt og koma vörunni á markað segir Gunnar Ásgeirsson. Mest af frystu síldinni fer á Rússlandsmarkað. Búið er að taka á móti um 15 þúsund tonnum af síld og er vinnslugeta á sólarhring 3-330 tonn en takmarka hefur þurft veiði skipanna við vinnslugetu í landi. Lesa meira
 

Rithöfundarkvöld í Pakkhúsinu - 17.11.2004 Nóvember

Annan desember munu nokkrir rithöfundar lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum í Pakkhúsinu á Höfn. Haukur Ingólfsson ætlar að lesa úr bók sinni ,,Niðurfall” sem eru ljóðmyndir, þættir af hinum dularfulla Manga. Helgi Björnsson jöklafræðingur kynnir bókina ,, Jöklaveröld, Náttúra og Mannlíf”, rannsóknir á 20.öld, sem Helgi er höfundur að ásamt þeim Agli Jónssyni og Sveini Runólfssyni. Þorvaldur Þorsteinsson les upp úr bók sinni ,,Blíðfinnur og Svörtu Tenglarnir; Lokaorustan”. Lesa meira
 
Hótel Skaftafell

Fullbókað er og bætt á biðlista fyrir sumarið 2005 - 17.11.2004 Nóvember

Ferðaþjónustuaðilar í Sveitarfélaginu Hornafirði eru ánægðir með sumarið og hvað teygst hefur úr ferðatímanum í báða enda og ekki skemmir að vel lítur út með næsta ár. Fullbókað er og bætt á biðlista fyrir sumarið 2005 og einnig er mikið bókað fyrir 2006 segir Anna María hótelstjóri í Freysnesi. Hún segir að þetta sé besta sumarið í ferðaþjónustunni á Freysnesi frá byrjun og það lengsta, það er fyrst núna í nóvember að orðið er rólegt. Ekki þurfti að hafa hótelið lokað nema í tvo daga eftir stórtjónið í óveðrinu 16.sept. Það hefur gengið vonum framar að koma hótelinu í lag þó mikið sé eftir ennþá, t.d.tók ekki nema fjóra daga að setja nýtt þak á viðbygginguna þar sem allt þakið splundraðist.Enn hefur ekkert verið átt við húsið sem færðist af grunninum að hluta og skekktist allt. Verið er að skoða hvað hægt er að gera í sambandi við það hús en það er nánast ónýtt. Lesa meira
 
Ræmurnar á Höfn

Ræmurnar á Höfn fóru sína árlegu helgar-saumaferð - 16.11.2004 Nóvember

Það er algengt að klúbbar, vinnustaðir og félög allskonar taki eina helgi í október eða nóvember til að fara á einhvern notalegan stað þar sem hægt er að njóta útivistar í fögru umhverfi og líka til að láta dekra við sig. Smyrlabjörg í Suðursveit er einn þeirra staða sem uppfyllir þessi nauðsynlegu skilyrði þ.e.1.flokks þjónustu í glæsilegu hóteli, ljúffengar veitingar, fagurt umhverfi og góðar gönguleiðir. Sem sagt allt sem til þarf. Ræmurnar á Höfn fóru sína árlegu helgar-saumaferð, sem var bæði afslöppunar og vinnuferð, í Smyrlabjörg nýlega, en þetta er hópur handlaginna kvenna sem koma saman og sauma ótrúlega fallega muni úr efnisbútum, afklippum og nánast öllu sem hægt er að sauma. Konurnar fóru í Smyrlabjörg á föstudegi , voru að smá tínast á staðinn alveg fram að kvöldmat, allt eftir því hvenær hver komst að heiman og sagði Arna Harðardóttir, sem var til í að upplýsa hvernig svona helgi væri. Eftir matinn var tekið til við saumaskapinn og unnið til kl. eitt eftir miðnætti. Lesa meira
 
Árni Rúnar Þorvaldsson kennari

Afar ósáttir með hvernig staðið var að lagasetningunni - 15.11.2004 Nóvember

Skólahald í Hornafirði var með eðlilegum hætti í dag og flestir kennarar mættu til vinnu segir Árni Þorvaldsson kennari í Heppuskóla og formaður KSA. Menn eru bara afar ósáttir með hvernig staðið var að lagasetningunni og sérstaklega innihaldi hennar 3. gr. laga sem tekur samningsréttinn frá okkur segir Árni. Þó svo að það hafi verið eitthvað komið á móts við okkar tillögu undir það síðasta þá eru það bara eins og plástrar á sárin. Það er fyrst og fremst það sem menn eru óhressir með. Árni telur líklegt að einhverjar uppsagnir verði á meðal kennara á Austurlandi en í hversu miklum mæli þær verða er erfitt að spá um. Lesa meira
 
Sólarlag við höfnina

Góð mæting á málþing um eflingu atvinnulífsins - 15.11.2004 Nóvember

Á föstudaginn var haldið málþing um Nýheimum um eflingu atvinnulífsins á vegum Frumkvöðlaseturs Austurlands og atvinnumálefndar Hornafjarðar. Nokkuð góð mæting var á málþingið en á milli 40-50 manns létu sjá sig. Líflegar umræður sköpuðust um þau tækifæri sem eru hér í ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu, uppbyggingu þekkingariðnar svo dæmi séu tekin. Efni málþingsins var að ræða hvort klasar gætu verið leið til að efla nýsköpun og framþróun í atvinnulífi í héraðinu. Í stuttu máli byggir klasi á því að margvíslegir aðilar, t.d. fyrirtæki og opinberar stofnanir, taka höndum saman um samvinnu og sérhæfingu í atvinnumálum. Klasinn sem er myndaður byggir á sérstöðu í atvinnuumhverfi þessara aðila og hefur þann tilgang að bæta samkeppnisstöðu þeirra. Lesa meira
 
Svínafellsjökull

Skriðjöklarnir í Öræfum hopa og þynnst - 15.11.2004 Nóvember

Skaftafellsjökull hefur hopað um 30 metra í sumar og þynnst gríðarlega mikið inn eftir öllu segir Guðlaugur Gunnarsson, en hann hefur mælt skriðjöklana í Öræfum árlega frá 1947. Hann hefur ekki mælt þynningu jöklanna en segir að í brekkunni niður frá há-jöklinum séu alltaf að koma fleiri og fleiri klettar í ljós. Svínafellsjökull hopaði 10 metra á þessu ári. Hann hefur ekki síður hopað mikið þó talan sé lægri en mælt er niður bratta öldu og þetta er ein mesta lækkun og þynning á jöklinum og stutt í að hann fari að hopa frá öldunum og þá styttist hann enn meira segir Guðlaugur. Stórt lón var nálægt jöklinum beint upp af Freysnesi og við það lá vegur sem ferðafólk fór mikið til að ganga á jökulinn, þetta lón er nú horfið í Svínafellsá. Falljökull hopaði 18 metra og segir Guðlaugur það nokkuð mikið miðað við aðstæður þar. Falljökull er austan við Svínafellsfjall og kemur skriðjökullinn niður beggja megin við Rauðakamb og kallast sá hluti sem kemur vestan við Rauðakamb, Virkisárjökull. ,,Ég hef ekki mælt Virkisárjökul vegna þess hvað þar eru miklar grjótöldur og grjót ofaná jöklinum svo erfitt er að komast að honum og eins að sjá hvar hann endar.” |nl| |nl| Lesa meira
 
Guðbrandur spilar

Hornfirðingarnir Guðbrandur og Gunnar Páll unnu með yfirburðum - 15.11.2004 Nóvember

Föstudaginn 5. nóvember s.l. var spilaður landstvímenningur í bridge á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði og Hornafirði. Alls tóku 60 pör þátt í mótinu. Efstir á mótinu voru Hornfirðingarnir Guðbrandur Jóhannsson og Gunnar Páll Halldórsson og unnu með yfirburðum, fengu 68,83% skor, Reykvíkingar voru í 2. sæti með 59,98% sk. og Ísfirðingar í þriðja sæti með 59,81% sk. í níunda sæti voru Hornfirðingarnir Ólafur og Valdimar með 57,10% sk. og Ingvar og Gísli í 14. sæti með 55,63% sk. Mjög góð frammistaða hjá Hornfirðingunum. Guðbrandur segir að nokkur lægð hafi verið í bridge spilamennskunni hér undanfarið en þetta sé að breytast, nýir félagar eru að koma inn og að horft sé björtum augum til vetrarstarfsins. Lesa meira
 
Miðbær

Hornfirðingar, stuðlum að blómlegri verslun í heimabyggð - 12.11.2004 Nóvember

Jólavörurnar streyma nú inn í verslanir hér á Hornafirði og eru margir farnir að huga að jólagjöfum og öðru sem til þarf fyrir jólin. Úrval er gott í verslunum hér og verð sambærilegt við verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Verslunareigendur hér eiga í vök að verjast vegna tíðra komu umferðasala frá verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Umferðasalar þessir senda dreifibréf í hvert hús um að þeir séu mættir á staðinn með mikið úrval af frábærum söluvarningi á einstaklega góðu verði, flott og ódýrt í jólapakkana. Svona einfalt er þetta reyndar ekki því í mörgum tilfellum eru þessar vörur dýrari en í verslunum á staðnum. Flestum hlýtur að finnast hallærislegt að fá bréf án undirskriftar eða upplýsinga um hver sé sendandinn en svo er um sum þessi auglýsingabréf sem detta inn um bréfalúguna með póstinum, þar er ekkert um hver að þessu stendur. Lesa meira
 
Siggi og Lilja

Boðið upp á blóðsykurmælingar í Miðbæ - 12.11.2004 Nóvember

Sunnudaginn 14. nóvember næstkomandi er Alþjóðadagur sykursjúkra, af því tilefni bjóða Samtök sykursjúkra og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands upp á blóðsykurmælingar í Miðbæ frá 13:00-14:30. Tilgangurinn er að vekja athygli fólks á sykursýki. Mæling á blóðsykri tekur aðeins hálfa mínútu og hvetjum við fólk til að koma í mælingu og fræðast í leiðinni. Sykursýki er í raun samnefni yfir tvær gerðir af sama sjúkdómi sem flokkast í týpu 1 og týpu 2. Þeir eiga ýmislegt sameiginlegt en eru þó mjög ólíkir. Týpa 1 er svokölluð barna- og unglingasykursýki eða insúlínháð sykursýki. Þessa tegund fær fólk yfirleitt á yngri árum og dregur nafn sitt af því. Ónæmiskerfið tekur upp á því að ráðast á brisið og eyðileggja þær frumur sem framleiða hormónið insúlín. Eftir það þarf sjúklingur að fá allt insúlín utanfrá með sprautum 2-5 sinnum á dag. Lesa meira
 
Diskur_Nálgast jóa lífsglöð læti

Nú nálgast jóla lífsglöð læti - 11.11.2004 Nóvember

Út er kominn diskur með 19 jólalögum sem fjórir Hornfirskir kórar flytja. Heiti disksins er,, Nú nálgast jóla lífsglöð læti”. Kórarnir eru; Samkór Hornafjarðar, Barnakór Hornafjarðar, Barnakór Hafnarkirkju og stúlknakórinn Vox Luminae. |nl|Stjórnandi kóranna er Kristín Jóhannesdóttir og voru lögin hljóðrituð í Hafnarkirkju í apríl og maí á þessu ári, upptöku stjórnaði Heiðar Sigurðsson og útgefandi plötunnar er Galdur ehf. Mikill kraftur hefur verið í kórstarfi á Hornafirði og margir kórar starfandi og hefur Kristín Jóhannesdóttir átt þar stóran þátt ásamt fleirum frábærum stjórnendum. Vox Luminae, sem er sönghópur 8 stúlkna á aldrinum 13 –16 ára, var stofnaður 2001. Sönghópurinn hefur komuð fram og sungið við ýmis tækifæri og einnig verið með tónleika utan sinnar heimabyggðar. Lesa meira
 
Landsbanki_Guðbjörg og Gerða

Opið hús hjá Landsbankanum á föstudag - 11.11.2004 Nóvember

Á föstudag munu starfsmenn Landsbankans á Höfn blása í lúðra og bjóða Hornfirðingum til kynningar á þjónustu bankans á opnu húsi í útibúi bankans við Hafnarbraut. Þar verður m.a. kynnt fyrirtækjaþjónusta bankans, nýungar í fasteignalánum, Launavernd og vefur Landsbankans sem hlaut þrenn verðlaun þegar Íslensku vefverðlaunin 2004 voru afhent í október. Að sögn Guðbjargar Garðarsdóttur þá er tilgangur með opnu húsi að gefa viðskiptavinum og starfsfólki bankans gott tækifæri til að hittast og skiptast á skoðunum og fara yfir helstu nýjungar sem í boði eru. Einnig munu verða aðrar uppákomur ásamt því að gestum verður boðið upp á léttar veitingar. Lesa meira
 

Ný aðstaða fyrir nemendur í fjarnámi opnuð í Nýheimum - 09.11.2004 Nóvember

Í dag miðvikudag verður formleg opnun á aðstöðu í Nýheimum fyrir þá nemendur sem eru í fjarnámi á háskólastigi. Aðstaðan er í einni skrifstofu Frumkvöðlaseturs Austurlands og geta fjarnámsnemendur haft aðgang að tölvum, prenturum, faxi og ljósritunarvél ásamt því að geta nýtt sér fundarherbergi sem þar er. Einnig býðst nemendum aðgangur að bókasafninu og lesaðstöðu Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu. Að sögn Eyjólfs Guðmundssonar skólameistara FAS þá skipir það miklu máli að nemendur finni stuðning í fjarnáminu með því að hitta aðra þó svo að fólk sé í mismunandi námi. Eyjólfur segir að það vanti hér meira af námsráðgjöf á háskólastigi en það standi til bóta. Á Hornafirði eru 33 nemendur skráðir hjá Fræðsluneti Austurlands við ýmsa háskóla, svo sem Háskóla Íslands, Tækniháskólann, Háskólann á Hólum og Kennaraháskólann en þar eru flestir fjarnámsnemendurnir. Lesa meira
 
Börn í Nesjaskóla fá endurskinsborða

Komnar í jólaskap og byrjaðar að undirbúa laufabrauðssöluna - 09.11.2004 Nóvember

Slysavarnakonurnar á Höfn eru komnar í jólaskap og farnar að undirbúa sína árlegu laufabrauðssölu sem þær eru með í byrjun aðventu. Undanfarin ár höfum við slysavarnakonur komið saman og skemmt okkur við að skera út laufabrauð og steikja, og selt það segir Eygló Illugadóttir. Við höfum venjulega verið svona 10–15 í hóp í tvö kvöld og steikt þúsund kökur. Við fórum strax að fá pantanir eftir að laufabrauðsauglýsingin kom á Skjávarpinu þó ekki sé enn komið verð á kökurnar. Eygló bjóst við að hægt væri að sinna pöntunum á sér-útskornum kökum ef það væri ekki því erfiðari skurður. Þessa dagana er Línan boðin til sölu en hún er eina af mörgum fjáröflunarleiðum þeirra slysavarnakvenna. Línan er happdrætti og er eigöngu seld hér í Austur-Skaftafellssýslu. Síðastliðin ár hafa slysavarnarkonurnar fært öllum 6 ára börnum í sýslunni endurskinsborða og á þessu ári færðu þær börnunum í 4. bekk lífsleikniefnið ,,Geimálfurinn” að gjöf. Einnig stendur til að gefa leikskólunum sýninguna ,,Númi og höfuðin sjö”. Önnur föst verkefni eru kaffisala á sumardaginn fyrsta og fyrsta laugardag í maí standa þær fyrir hjóladegi þar sem skoðuð eru hjól og hjálmar og farið í gegnum hjólaþrautir. Lesa meira
 
Félag eldriborgara

Félagsstarf eldri borgara á miklum skriði - 09.11.2004 Nóvember

Að venju er félagsstarf Félags eldri borgara á Hornafirði komið á fullann skrið og af nógu að taka. Hver vika er þéttskipuð viðburðum og ættu flestir að finna þar eitthvað við sitt hæfi má þar nefna gönguferðir, bókband, snóker, boccia, handavinna, tekið er í spil, sundleikfimi og líkamsrækt. Þá er starfandi öflugur kór Gleðigjafar sem Guðlaug Hestnes stjórnar og var kórinn á sunnudaginn að syngja við allra heilagramessu í Hafnarkirkju. Á laugardaginn brá hópur úr félaginu sér til Djúpavogs til að leiðbeina eldri borgurum þar í boccía. Félagið hefur boðið upp á ýmis námskeið og er nú í gangi glerlistarnámskeið. Samverustund er á dagskrá annan hvern föstudag og þá koma góðir gestir í heimsókn sem fræða og skemmta. Á hverjum sunnudegi er spiluð félagsvist og næstkomandi sunnudag byrjar þriggja daga parakeppni og eru vegleg verðlaun í boði fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið. Lesa meira
 
Fjölskyldudagar í Íþróttahúsinu

Vel lukkaður fjölskyldudagur - 09.11.2004 Nóvember

Fjölskyldudagurinn sem haldinn var á Höfn sl. laugardag tókst með ágætum og það er mikil og almenn ánægja með þennan fyrsta formlega fjölskyldudag og greinilega mikill áhugi á að svona fjölskyldudagur verði haldinn árlega í byrjun vetrar. Mjög góð aðsókn var að þeim stöðum sem voru opnir og var aðgangur ókeypis. Í Nýheimum var sitt hvað til skemmtunar s.s. söngur, upplestur, nemendur tónskólans léku, sagðir brandarar og fl. Allir fengu pizzusneið, djús eða kaffi í boði sveitarfélagsins og eins fengu þeir sem voru að skemmta sér í íþróttahúsinu pizzusendingu og drykk úr Nýheimum. Litaboltafélagið var með aðstöðu í gámi við Sindrahúsið og þar gátu allir fengið að prufa þessa nýju tómstundaiðju. Tvær bíósýningar voru í Sindrabæ í boði Skinneyjar Þinganess og Félagsmiðstöðin með sínum tækjum og búnaði var öllum opin. Lesa meira
 
Guðrún með margmiðlunardiskinn

Margmiðlunardiskur í staðinn fyrir handbækur - 08.11.2004 Nóvember

Á síðustu ferðakaupstefnu Vest Norden með þátttakendum frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum var ákveðið að gefa út margmiðlunardisk, í staðinn fyrir handbækur með þjónustuskrám og kynningu á afþreyingu og framboði á gistingu á hér á okkar svæði, segir Guðrún Ingimundardóttir formaður Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu. |nl|Undanfarin ár hefur verið prentuð ein bók fyrir hverja Vest Norden ferðakaupstefnu sem er bæði dýrt og tímafrekt og einnig er líka dýrt að dreifa henni til þeirra sem hafa áhuga á efni frá okkur, þetta eru þungar sendingar og óhentugar. Því fórum við að skoða hvort við gætum ekki gert þetta á einfaldari hátt án þess að slaka á gæðunum og í framhaldi af því var ákveðið að gera þennan margmiðlunardisk sem er agnarlítill, mikið minni en venjulegur geisladiskur og passar í tölvurnar. Lesa meira
 
Börn í Nesjaskóla fá endurskinsborða

Sex ára börn í Nesjaskóla fá endurskinsborða - 05.11.2004 Nóvember

Slysavarnadeildin Framtíðin færði í morgun sex ára börnum í Nesjaskóla endurskinsborða. Það voru þær Ingibjörg Ragnarsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir sem afhentu börnunum borðana og sýndu þeim hvernig ætti að setja þá á sig. Löggan, Jón Garðar Bjarnason kom og ræddi við krakkana um hvernig ætti að haga sér í umferðinni og reglur um það rifjaðar upp. Síðan spurði hann um hvort þau settu ekki alltaf bílbeltið á sig þegar þau færu í bíl og eins hvort þau vildu ekki líka passa uppá að mamma þeirra og pabbi spenntu beltin áður ekið væri af stað. Þau voru alveg með það á hreinu að þau ætluðu alltaf að vera með beltin spennt í bílnum en eitt barnanna kallaði upp ,,mamma mín notar ekki bílbeltið nærri því alltaf”. Þetta sama barn ætlar að passa upp á að mamman fari eftir reglunum og noti bílbeltið. Lesa meira
 
Dægradvöl_Ásta Oddbergsdóttir

Margt gert til gamans og afþreyingar á Dægradvöl Skjólgarðs - 05.11.2004 Nóvember

Dægradvöl er starfrækt á Skjólgarði fjóra virka daga vikunnar frá kl. 13.30-16.00 fyrir eldri borgara, bæði heimafólk á Skjólgarði og utan þess. Ýmiskonar afþreying er þar í boði svo sem að spila á spil, upplestur, horfa á myndbönd, söngur og að sjálfsögðu handverk eftir getu og áhuga hvers og eins. Bingó er einnig á dagskránni og bókband ef þátttaka er næg. Ýmislegt fleira er þar til gamans gert og svo er síðdegiskaffi í lok vinnudagsins. Þátttakendur utan heimilisins greiða kr. 200 fyrir daginn og er þar innifalið síðdegiskaffi akstur o.fl. Það koma núna 16 manns til okkar utan þeirra sem búa hér á Skjólgarði segir Bylgja Kristjánsdóttir sem sér um Dægradvölina.Við förum einu sinni í viku í Ekruna og vinnum og skemmtum okkur með eldri borgurunum sem þar eru. Þegar 30 ára afmælis dvalarheimilisins var minnst um sl. helgi var sýning á þeim fjölbreyttu og fallegu munum sem unnir eru á Skjólgarði. Lesa meira
 
Smyrlabjörg

Uppskeruhátíð bænda í Austur–Skaftafellssýslu - 05.11.2004 Nóvember

Uppskeruhátíð bænda í Austur–Skaftafellssýslu verður haldin að Smyrlabjörgum á morgun laugardaginn 6. nóvember. Boðið verður upp á fordrykk, Risarækjuspjót á salatbeði í forrétt og hátíðar bóndasteik ásamt kartöflum, grænmeti og sósu. Að sögn framkvæmdarstjóra hátíðarinnar er ekki búið að ákveða hvaða bóndi verður steiktur í ár. Í eftirrétt verður boðið upp á sunnudagseftirrétt og að lokum kaffi, koníak og konfekt. Að vanda verður mikið um að vera á uppskeruhátíðinni og hver uppákoman á fætur annari. Veitt verða verðlaun fyrir bestu hrútana og að þessu verður veislustjóri Sveinbjörn Eyjólfsson forstöðumaður nautastöðvarinnar á Hvanneyri. Hljómsveitin Kusk mun svo sjá um að spila undir dansi. Lesa meira
 
Framkvæmdir við Hafnarbrautina

Framkvæmdir við Hafnarbrautina - 04.11.2004 Nóvember

Bæjarráð samþykkti fyrr á þessu ári að fara í gang með að gera breytingar á yfirbragði Hafnargötunnar allt frá gatnamótum Víkurbrautar að gatnamórum Svalbarðs. Breytingarnar felast m.a. í því að gatan verður mjókkuð og hellulögð auk þess sem hugmyndir hafa verið unnar af nánasta nágrenni hennar, en Ulla R Pederse landslagsarkitekt hefur gert tillögur að umhverfinu og síðan er þetta unnið áfram hjá tæknideild sveitarfélagsins. Hugmyndin kviknaði út frá frétt frá Keflavík ( Reykjanesbæ ) en þar hefur verið unnið að því að endurgera Hafnarbrautina og gamla bæinn á glæsilegan hátt á síðustu árum, en Hafnarbrautin þar var landsþekkt fyrir óglæsileika frama af. Blómaland er nú að byrja vinnu við fyrsta áfangann, en þeir skiluðu lægstu verðum í verkið á sínum tíma. Byrjað verður við gangbrautina milli Sýsluskrifstofuna og gamla Shell og hellulagt í áttina að Litlubrú. Einnig verður gatan hækkuð á þessu svæði þannig að ekki myndist þarna stór pollur eins og stundum áður fyrir framan Sparisjóðinn. Lesa meira
 
Úr myndasafni

Unglingar í Þrykkjustarfi - 04.11.2004 Nóvember

Núna eru unglingarnir í Þrykkjunni að undirbúa Hrekkjavökuna undir stjórn Sindra Ragnarssonar starfsmanns félagsmiðstöðvarinnar sem verður í kvöld, fimmtudagskvöld, í kjallara gamla vöruhússins við Hafnarbraut sem verið er að útbúa sem magnað draugahús. Á síðasta föstudag voru magnaðir rokktónleikar í Þrykkjunni þar sem fram komu fjóra rokksveitir sem rokkuðu við mikinn fögnuð unglingana. Í félagsmiðstöðin er íþróttaklúbbur sem hefur aðstöðu í íþróttahúsinu einu sinni í mánuði. Einnig eru starfandi fjölmiðla- tölvu-, og kvikmyndaklúbbar. Fjölmiðlaklúbburinn stefnir að því að gefa út blað sitt Þrykkjufréttir um miðjan þennan mánuði. Lesa meira
 
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu

Lúðrasveit Tónskólans tekur þátt í landsmóti - 03.11.2004 Nóvember

Landsmót hjá samtökum skólalúðrasveita verður haldið í Grafarvogi nk.laugardag og sækja það 26 skóla-lúðrasveitir víða að af landinu og alls taka 700 börn og unglingar þátt í mótinu. Lúðrasveit Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu tekur þátt í mótinu en hún er skipuð 27 krökkum úr 6.–9. bekk ásamt einum úr 10.bekk. Landsmótið er nú haldið árlega og var í fyrrasumar á Akureyri þar sem Hornfirska sveitin mætti til leiks. ,,Það er mikill áhugi hjá krökkunum og við erum búin að vera að undirbúa þetta alveg frá því sl.vetur þegar ákveðið var að taka þátt í mótinu”, segir Jóhann Moravek skólastjóri Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Lúðrasveitirnar verða tónleika í íþróttahúsinu við Dalhús í Grafarvogi frá kl. 10.00 á laugardaginn til kl.18.00 með smá hléum. Á sunnudaginn kl. 13.30 til 15.30 spilar Lúðrasveit Æskunnar og á eftir henni spila allar lúðrasveitirnar bæði í tveim hópum og svo í einu þar sem 700 manns spila saman. |nl| |nl| Lesa meira
 
Eldgos í Grímsvötnum

Áin tvöfaldast sem vanalega gerist á 55 tímum - 02.11.2004 Nóvember

Skeiðará hefur vaxið hratt síðan í gær og segir Snorri Zophoníasson hjá Orkustofnun að á átján klst. í gær hafi áin tvöfaldast sem vanalega gerist á 55 tímum. Ekki eru komnar niðurstöður úr mælingu í dag. Rennsli er orðið undir allri brúnni en langt er í að nokkur hætta sé á að brúin geti skemmst. Snorri á von á að vöxtur í ánni haldi áfram í dag og það sé í fyrstalagi í kvöld að hætti að vaxa og fari að minnka. Snorri sagði að búið væri að reikna út að vatnið sem tilheyrði hlaupinu sjálfu yrði búið að ná hámarki í dag eða nótt en nú er eldgos og fyrir bragðið mun halda áfram að vaxa lengur. Tíminn er kominn sem tekur vatnið að koma ofan úr Grímsvötnum en hvort þetta er vatn sem er nýbráðnað skal ég ekki segja um. Rennsli í Skeiðará er núna um 2000 tonn á sek. Lesa meira
 
Frá Humarhátíð 1994

Fjölskyldudagur laugardaginn 6. nóvember - 02.11.2004 Nóvember

Á fundi bæjarráðs þann 27. október var samþykkt eftirfarandi tillaga Elínar Magnúsdóttur: „Vegna þeirrar óvenjulegu stöðu sem nú er uppi í samfélaginu hjá fjölskyldufólki og vegna þeirrar ábyrgðar sem kjörnir sveitarstjórnarmenn bera gagnvart íbúum sveitarfélagsins, legg ég undirrituð til að Sveitarfélagið Hornafjörður standi fyrir sérstökum fjölskyldudegi laugardaginn 6. nóvember nk. í samstarfi við Sindra og æskulýðs- og tómstundaráð.“ Undirbúningur er í fullum gangi og liggur dagskrá fyrir. Margt verður hægt að gera sér til gamans, svo sem að fara í sundlaugina, Sporthöllina, Nýheima, prófa litbolta og hjólaskauta, fara í íþróttahúsið á Höfn, félagsmiðstöðina, bókasafnið, jöklasýningu, Pakkhúsið og Sindrabíó. Lesa meira
 
EldgosGrimsvotn

Eldgos líklega hafið í Grímsvötnum - 01.11.2004 Nóvember

Líklegt má telja, að hafið sé eldgos í eða við Grímsvötn, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni. Tilkynningin er svohljóðandi: „Í framhaldi af vaxandi jarðskjálftum undanfarna daga og sérstaklega í dag hófst samfelld hrina jarðskjálfta og óróa kl. 20.10 í kvöld. Líklegt má telja að þá hafi gos hafist í eða við Grímsvötn. Fylgst verður með framvindunni á Veðurstofunni.“ Samhæfingarstöð almannavarna hefur verið opnuð vegna þessa. |nl|Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér fréttatilkynningu: „Eldgos virðist vera um það bil að hefjast í Grímsvötnum. Undanfarna tíma hefur verið snörp jarðskjálftahrina í Grímsvötnum. Samhæfingarstöð almannavarna hefur verið virkjuð og Flugmálastjórn, Vegagerðin, lögreglustjórinn í Vík og lögreglustjórinn á Höfn í Hornafirði hafa verið upplýstir um stöðu mála. Lesa meira
 
Andres Wang á hjólinu góða

Annað hvort elskar Ísland mig eða Noregur hatar mig, ég kemst ekki heim. - 01.11.2004 Nóvember

Erlendir ferðamenn geta lent í ýmsu á ferðalögum sínum um Ísland og jafnvel að allt gangi öfugt við það sem áformað er. Norðmaðurinn Andres Wang fékk að kynnast þessu og hann kynntist einnig íslenskri gestrisni og hjálpsemi sem varð til þess að Íslandsferðin varð ævintýri en ekki martröð. Ætlunin var að sigla til frá Noregi til Færeyja á bátnum sem pabbi hans smíðaði en vegna slyss sem hann lenti í varð hann að fresta þeirri ferð. Hann heitir Andres Wang og er 37 ára gamall sjúkrabílstjóri frá Kongsberg í Noregi. Fyrir 10-15 árum heyrði hann um ferð Norrænu og vissi að hún kæmi við í Færeyjum á leið sinni til Íslands, Mótorhjólið var í lagi, tjaldið og svefnpokinn klárt, hann tilbúinn í að fara í ferðalag þó svo hann gæti ekki farið á bát föður síns til Færeyja þá gæti hann farið með Norrænu. Andres byrjaði að hringja í ferðaskrifstofur til að grafast fyrir um hvernig hægt væri að komast með skipinu og nokkrum dögum síðar nánar tiltekið 11.september s.l. var hann lagður af stað fá Bergen í Noregi áleiðis til Íslands. Lesa meira
 
30 ára afmæli Dvalarheimilis Skjólgarðs

30 ára afmælisins minnst með afmælisveislu á hjúkrunarheimilinu - 01.11.2004 Nóvember

Hjúkrunar og dvalarheimilið Skjólgarður á Höfn var formlega tekið í notkun 8.nóvember 1974 og var þrjátíu ára afmælisins minnst með afmælisveislu á hjúkrunarheimilinu sl. föstudag. Með stofnun Skjólgarðs gjörbreyttist aðstaða aldraðra og sjúkra í sýslunni, þeirra sem þurftu á umönnun og hjúkrun að halda, einnig var fæðingarheimilið flutt í Skjólgarð. Halldóra B. Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar sagði að byrjað hefði verið í tveim viðlagasjóðshúsum við Hvannabrautina með tengibyggingu á milli þeirra, og seinna voru keypt tvö viðlagasjóðahús til viðbótar. Það tók ekki langan tíma að fylla hvert rými á Skjólgarði og þegar fjölmennast var þar voru dvalargestir 22 aldraðir vistmenn og 25 sjúklingar. Þá var fermetrafjöldi á vistmann 20 fermetrar og þrengslin óskaplega mikil. Nú eru á Skjólgarði og hjúkrunardeildinni 14 rúmgóð þjónusturými, 22 hjúkrunarrými og 4 bráðarými. Halldóra sagði að skýringin á þessari fækkun vistmanna væri sú að heimaþjónusta hefur stóraukist og áhersla lögð á að gera fólki kleift að geta verið á sínu heimili sem lengst. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica