Föstudaginn 5. nóvember s.l. var spilaður landstvímenningur í bridge á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði og Hornafirði. Alls tóku 60 pör þátt í mótinu. Efstir á mótinu voru Hornfirðingarnir Guðbrandur Jóhannsson og Gunnar Páll Halldórsson og unnu með yfirburðum, fengu 68,83% skor, Reykvíkingar voru í 2. sæti með 59,98% sk. og Ísfirðingar í þriðja sæti með 59,81% sk. í níunda sæti voru Hornfirðingarnir Ólafur og Valdimar með 57,10% sk. og Ingvar og Gísli í 14. sæti með 55,63% sk. Mjög góð frammistaða hjá Hornfirðingunum. Guðbrandur segir að nokkur lægð hafi verið í bridge spilamennskunni hér undanfarið en þetta sé að breytast, nýir félagar eru að koma inn og að horft sé björtum augum til vetrarstarfsins.
Lesa meira