Október
Arnar Rafnkelsson við flutningatankinn
Arnar Rafnkelsson við flutningatankinn
Arnar Rafnkelsson við flutningatankinn sem notaður er til að flytja bræðslusíld frá Djúpavogi
Mynd 1 af 2
1 2

29.10.2004 Október

Búið að bræða fjögur þúsund tonn hjá Skeggey

Síldarbræðsla hjá Skeggey ehf hefur gengið vel og er búið að bræða fjögur þúsund tonn. Frá Djúpavogi er öll síld, sem ekki er unnin þar til manneldis, flutt í tanki til Hornafjarðar og brædd hjá Skeggey. Ástæðan fyrir þessum flutningum er að sl.vetur keypti Skinney Þinganes loðnu og síldarbræðsluna á Djúpavogi og er öll bræðsla hætt þar. Þegar síldveiði er góð eins og verið hefur undanfarið eru farnar 4-5 ferðir á sólarhring með bræðslusíld og er búið að flytja um 600 tonn til Skeggeyjar. Björn Emil Traustason bræðslustjóri er mjög ánægður með gang mála þar og segir að brætt sé allan sólarhringinn á vöktum og eru starfsmenn níu.

Starfsmenn bræðslunnar hafa unnið við að einangra tækjabúnað verksmiðjunnar en ávinningurinn af því verki er að minna tapast út af hita og sparnaður á olíu. Þegar búið er að einangra tækin getum við náð niður olíueyðslu um 8 ? 12 lítra á hvert hráefnistonn segir Björn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica