Október
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir hjá Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands og starfsmenn boða til opins fundar um geðheilbrigðismál í Nýheimum

28.10.2004 Október

Opinn fundur um geðheilbrigðismál í Nýheimum

Í næstu viku mun Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands boða til opins fundar um geðheilbrigðismál í Nýheimum og mun gestur fundarins verður Bjarni Arnarson en hann hefur haldið fyrirlestra víða í Framhaldsskólum landsins á vegum Geðræktar. Bjarni mun ræða um reynslu sína af því að veikjast alvarlega af geðsjúkdómi og hvernig hann hefur náð að vinna heilsuna aftur og viðhalda henni. Hvernig eflir maður geðið? Hvað ber að varast? Hvernig þekkir maður einkennin? Eru mestu fordómarnir hjá manni sjálfum? Þessar spurningar og fleiri verða ræddar og fjallað verður um málefni tengd geðröskunum og geðrækt.

Fundurinn verður mánudaginn 1. nóvember 20. Enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir


Hugleiðingar um Geðorðin tíu

1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara

2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um

3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir

4. Lærðu af mistökum þínum

5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina

6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu

7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig

8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína

10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica