Október
4x4 úr myndasafni
4x4 úr myndasafni
Frá ferðalagi 4x4 klúbbsins
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

28.10.2004 Október

Halda upp á eins árs afmæli 4x4 Hornafjarðardeildar

Hornafjarðardeild klúbbsins 4x4 á eins árs afmæli núna í lok þessa mánaðar. Klúbburinn hefur formlega verið tekinn í Landsdeild klúbbsins 4 x 4 sem er með tíu deildir víðsvegar um landið. Um næstu helgi er fyrirhuguð haustferð klúbbsins og verður farið af stað frá Höfn á föstudag, ekið um Fjallabaksleiðir, gist tvær nætur í Hólaskjóli og komið heim á sunnudag. Þorkell Kolbeins segir að ákveðið hafi verið í vor að ekki yrðu skipulagðar ferðir á vegum klúbbsins í sumar þar sem ferðafélagið hér hefði verið með slíkar ferðir á þeim tíma en stefnt væri að því að fara a.m.k. 2-3 ferðir í vetur. Klúbburinn verður með fasta spjallfundi annan hvern miðvikudag þar sem menn koma saman og ræða málin. Margir halda að til þess að vera gjaldgengur í 4 x 4 klúbbinn þurfi viðkomandi að eiga jeppa og það helst breyttan vel útbúinn fjallajeppa en svo er þó víðsfjarri segir Þorkell, það eru allir velkomnir í klúbbinn sem hafa áhuga á ferðamennsku og skoða landið.

Ferðin núna um helgina er ferð sem hægt er að fara á hvernig jeppa sem er en síðar verða ferðir sem krefjast meiri búnaðar ökutækja.
Rúmlega 40 manns er í Hornafjarðardeild 4 x 4 klúbbsins og formaður hans er Þorkell Kolbeins. Aðrir í stjórn eru; Sigurjón Einarsson, Sveinbjörn Steinþórsson, Jón Bragason og Árni Pétur Hilmarsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica