Október
Frá Skarðsdal_IMG_7404
Frá Skarðsdal_IMG_7404
Tengivagninn fór á hliðina í Skarðsdal
Mynd 2 af 2
1 2

26.10.2004 Október

Tengivagn á hliðina í Skarðsdal

Umferðaróhapp varð um miðjann daginn í dag á veginum í Skarðsdal norðan við Almannaskarð þegar tengivagn við bíl sem notaður er til malarflutninga lenti útaf veginum og skemmdist mikið. Ökumaður bílsins, Emil Erlingsson telur líklegast að eitthvað hafi brotnað í tengingu vagnsins og er vagninn mikið skemmdur. Eigandi vagnsins er Hagverk í Fellabæ. Verið var að flytja möl úr Fjarðará í uppbyggingu á veginum norðanmegin við göngin þegar óhappið varð en byrjað var á veginum Lón-megin í morgun.

Uppbygging vegar að göngunum að sunnan er að mestu lokið en bundið slitlag mun ekki verða sett á veginn fyrr en næsta sumar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica